Vertu memm

Markaðurinn

WMF framleiðir borðbúnað á heimsmælikvarða

Birting:

þann

WMF framleiðir borðbúnað á heimsmælikvarða

Það þekkja flestir þýska fyrirtækið WMF sem framleitt hefur hágæða eldhúsáhöld í 165 ár.

Fyrirtækið selur í raun öll tæki og tól sem þarf við eldamennsku auk þess sem það selur borðbúnað, leirtau og glös. Samkvæmt WMF þá nota yfir 100 milljón manns WMF vörur daglega í heiminum.

Við já Bako Ísberg höfum verið umboðsaðili fyrir WMF stóreldhús um árabil og hafa vörurnar þeirra heldur betur slegið í gegn.

WMF framleiðir borðbúnað á heimsmælikvarða

Margir þekkja vatnskönnurnar frá þeim sem eru með loki og síu þannig að klakar og annað helst í könnunni þegar helt er.

Hnífaparakassarnir þeirra eru á einstöku verði og höfum við verið með vinsælar týpur á lager á borð við Boston og Denver.

Í haust varð algjör sprenging í svokölluðum High Tea rekkum frá WMF en fólk getur valið hvaða stell eða diska það notar í rekkana sem seldir eru stakir.

Steikarhnífapörin og kjötmælarnir frá WMF eru hið mesta þarfaþing í eldhús allra landsmanna og  það er hægt að ganga að því vísu að við í Bako Ísberg eigum þetta til.

WMF hefur unnið til fjölda verðlauna og þykir fyrirtækið í topp 3 sætunum í heiminum í dag þegar kemur að borðbúnaði.

Þú færð WMF í Verslun okkar Höfðabakka 9 sem og í netverslun okkar www.bakoisberg.is

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið