Vertu memm

Uncategorized @is

Viltu vinna í einni flottustu veislu á Íslandi? Þá er hér tækifærið

Birting:

þann

Klúbbur Matreiðslumeistara - Galadinner

Galadinner hjá Klúbbi Matreiðslumeistara verður haldinn laugardaginn 9. janúar næstkomandi á Hilton hótel.

Barþjónaklúbbur Íslands leitar að þjónum til að vinna í veislunni, þetta er sjálfboðavinna sem gefur mjög mikið af sér og er til styrktar til Klúbbs Matreiðslumeistara:

  • Þið munuð sjá rétti matreidda af matreiðslumeisturum.
  • Sjá hvernig uppsetning á svona stórum veislum fer fram.
  • Uppdekning á borðum fyrir svona veislu.
  • Matseðil settan upp á Klassískan máta.
  • Kynnast öðrum þjónum/matreiðslumönnum í bransanum (Oft farið saman og skemmt sér eftir á).
  • Uppistand og söngatriði.
  • Munuð fá að eiga diskana sem matseðillinn er innprentaður í.
  • Sjá hvaða vín parast með hverjum rétt sem gefur meira innsýn.
  • Margt fleira.

Hvernig þetta fer fram:

  • Svört skyrta, svartir skór, bindi og skyrtur verða á staðnum í til að lána fyrir þá sem eiga ekki.
  • Mæting er kl. 16:00 og er til rúmlega 01:00.
  • Ykkur verður skipt í hópa og sjáið um viss svæði sem eru merkt nr borða, þetta fer allt fram á svæðinu.
  • Verður byrjað með freyðandi fordrykk og fingramat.
  • Sjálfur service með 9 réttum og vín sem verður parað með hverjum rétt.
  • Frágangur að eitthverju leiti.

Þessi facebook grúppa mun sjá hversu margir komast. Endilega deilið á sem flesta og bjóðið þeim sem þið haldið að gætu haft áhuga. Kvittið í könnunina á facebook hér.

Takk æðislega og sjáumst hress á laugardaginn!

Mynd: Guðjón Þór Steinsson matreiðslumeistari

Auglýsingapláss

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið