Vertu memm

Viðtöl, örfréttir & frumraun

Viltu taka þátt í saltfiskviku? – Skilafrestur er til 12. júlí

Birting:

þann

Tapasbarinn

Tapasbarinn
Steiktur saltfiskur með sætkartöflumús

Stefnt er að því að halda Saltfiskviku á Íslandi 28. ágúst til 8. september 2019.  Markmið Saltfiskviku er að gera saltfisknum hærra undir höfði hér heima og kynna óþrjótandi möguleika, gæði og áhugaverða sögu saltfiskins fyrir íslenskum og erlendum gestum.

Til að ná fram markmiðinu er ætlunin að auglýsa og bjóða upp á saltfiskrétti sem þátttökuveitingastaðir hafa eyrnamerkt sér vikuna 28. ágúst til 8. september nk.

Hverjir geta tekið þátt?

Allir veitingastaðir sem hafa áhuga á að taka þátt í þessu með okkur: óháð núverandi matseðli og hvar sem er á landinu.

Hvað þarf ég að gera til að taka þátt?

Það eina sem þarf að gera er að útbúa saltfiskréttinn sem á að bjóða upp á og senda góða mynd af réttinum, logo veitingastaðarins, heiti réttar og verði á [email protected] fyrir 12. júlí nk.

Eru einhver takmörk varðandi saltfiskréttinn?

  • Rétturinn þarf að vera úr saltfiski, ekki nætursöltuðum eða léttsöltuðum fiski.
  • Íslenskir saltfiskframleiðendur, Vísir, Skinney-Þinganes og Þorbjörn bjóða hverjum þátttakenda að hámarki 30 kg af saltfiski í A flokki á 1.290 kr/kg. Í boði verður flattur fiskur með beinum og flök. Hvert flak er í 400-700 g bitum.
  • Leiðbeiningar um útvötnun munu fylgja, en ef óskað er eftir verður saltfiskurinn útvatnaður og afhentur í 5kg einingum til þátttakenda, þá á 1.590 kr/kg.

Af hverju ætti ég að taka þátt í Saltfiskviku?

  • Tækifæri til að víkka sjóndeildarhringinn – allir þátttakendur fá upplýsingar um sögu saltfisks, verkun og útvötnun sem hægt er að nota til að:
    • undirbúa hráefnið
    • kynna fyrir kúnnanum
  • Möguleiki á að fá gestakokk frá Spáni
  • Auglýsing á þínum stað og þínum rétti, – fyrir og á meðan á vikunni stendur:
    • útbúinn verður listi af veitingastöðum með mynd af saltfiskrétti hvers staðar, ásamt verði og korti (staðsetning)
    • hluti af saltfiskvikunni er leikur á samfélagsmiðlum sem byggir á því að gestir eru hvattir til að setja myndir á instagram #saltfiskvika með möguleika á að vinna ferð til Barcelona

Hverjir halda utan um Saltfiskviku?

Matís, í samvinnu við Klúbb Matreiðslumeistara, Íslandsstofu og Félag íslenskra saltfiskframleiðenda.

Myndir: Sverrir Þór Halldórsson

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Í dag starfar Smári hjá Tónaflóði heimasíðugerð. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið