Vertu memm

Frétt

Villti kokkurinn mætir á samfélagsmiðlana með pomp og prakt

Birting:

þann

Úlfar Finnbjörnsson matreiðslumeistari, betur þekktur sem Villti kokkurinn

Úlfar Finnbjörnsson

Úlfar Finnbjörnsson matreiðslumeistari, betur þekktur sem Villti kokkurinn, er mættur á samfélagsmiðlana í öllu sínu veldi.

Það er virkilega gaman að fylgjast með meistaranum, frábærar myndir þá bæði nýjar og gamlar, uppskriftir og margt fleira.

Fylgist með Úlfari á facebook hér og á instagram hér.

Um Úlfar

Úlfar byrjaði að læra fræðin sín árið 1983 á Hótel Esju og útskrifaðist frá Hótel- og veitingaskóla Íslands 1987. Hann hefur unnið á hinum ýmsu veitingastöðum síðan auk þess að reka sjálfur veitingahús um árabil sem hét Jónatan Livingston Mávur og var staðsett við Tryggvagötu 4-6 í Reykjavík.

Úlfar Finnbjörnsson matreiðslumeistari, betur þekktur sem Villti kokkurinn

Úlfar Finnbjörnsson og Bjarki Ingþór Hilmarsson

Úlfar er meðlimur í Klúbbi matreiðslumeistara og var í íslenska Kokkalandsliðinu frá 1987-2002, m.a. sem fyrirliði síðustu árin, og vann til fjölda verðlauna.

Sjá einnig: Velgengni Kokkalandsliðsins allt til ársins 1978

Hann var kjörinn matreiðslumaður ársins á Íslandi árið 1994 og keppti meðal annars á Ólympíuleikunum í matreiðslu í tvígang ásamt því að taka þátt í smærri keppnum bæði erlendis og hér heima. Árið 1991 var Úlfar heiðraður með hinni virtu Cordon Bleu-orðu af Klúbbi matreiðslumeistara fyrir vel unnin störf í matreiðslukeppnum erlendis.

Úlfar Finnbjörnsson matreiðslumeistari, betur þekktur sem Villti kokkurinn

Úlfar sá um matreiðsluþætti á Ríkissjónvarpinu í tvö og hefur skrifað fjórar matreiðslubækur; A Taste of Iceland sem kom út 1995, Stóru bókina um villibráð 2011 sem var tilnefnd til Gourmand verðlaunanna sem besta villibráðabók heims 2011, Stóru Alífuglabókina 2014, Taste of Iceland 2016. Einnig á hann fjöldann allan af uppskriftum í hinum ýmsu kokkabókum bæði hér og erlendis. Uppskriftir eftir Úlfar hafa birst í tímaritinu Gestgjafanum frá árinu 1989. Hann var lausapenni hjá blaðinu til ársins 2005 en fastráðinn til ársins 2012, þar gengdi hann einnig starfi veitingarýnis.

2012- 2017 hefur Úlfar starfað sjálfstætt við veislur og vöruþróun fyrir hin ýmsu fyrirtæki og einstaklinga. Hann hefur séð um matreiðsluþáttagerð fyrir ÍNN, séð um matreiðslu í laxveiðihúsum víða um land og hann hefur einnig verið dómari í alþjóðlegum matreiðslukeppnum.  Í dag starfar Úlfar Finnbjörnsson sem yfirmatreiðslumaður á Grand Hótel Reykjavík

Fleiri fréttir um Úlfar hér.

Myndir: facebook / Ulli Wild Chef

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Í dag starfar Smári hjá Tónaflóði heimasíðugerð. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið