Vertu memm

Freisting

Villibráðaveisla SKG-veitinga á Hótel Ísafirði

Birting:

þann

Byrjað er að taka á móti borðapöntunum fyrir árlega villibráðaveisla SKG-veitinga sem verður haldin á Hótel Ísafirði laugardaginn 5. nóvember. Að venju verða miklar kræsingar á boðstólum svo sem hreindýr, gæs, svartfugl, skarfur, önd, lax, sjóbirtingur, hrefna og selur auk fjölda annarra sérvalinna rétta úr villtustu víðáttum landsins. Rjúpa verður því miður ekki á boðstólum, því enda þótt veiðibanni hafi verið aflétt ríkir enn sölubann á rjúpu. Veislustjóri verður starfandi sóknarprestur í Ísafjarðarprestakalli, matgæðingurinn og veiðimaðurinn séra Skúli Ólafsson.

Mönnum er svo bent á að ekki er seinna vænna að byrja að brýna sagnagáfuna, því eins og alla jafnan verða veitt verðlaun fyrir bestu veiðisögurnar. Lifandi tónlist verður yfir borðhaldi og sérvalin vín í boði. Miðaverð er 5.900 krónur.

 

Matreiðslumeistarar SKG veitinga eru:

Snorri G. Bogason matreiðslumeistari
Nám í Hótel- og veitingaskóla Íslands og Hótel Esju.
Snorri hefur starfað á fjölda veitingastaða á láði sem legi m.a. á Gullfossi, Hótel Esju o.fl.
Hann hefur sótt fjölda námskeiða í faginu og einnig miðlað af þekkingu sinni til annara með námskeiðum.
Netfang: [email protected]

 

 

 

Karl K. Ásgeirsson matreiðslumeistari
Nám í Hótel- og veitingaskóla Íslands, Hótel Sögu, Meistaraskólanum í Reykjavík og Culinary Institute of America.

Karl starfaði á Grillinu á Hótel Sögu í nokkur ár, og rak síðan veitinga- og gististað á Nesjavöllum áður en hann fluttist til Ísafjarðar. Hann hefur einnig sótt fjölda námskeiða til að auka við sína þekkingu í faginu.
Netfang: [email protected]

 

 

Guðlaug Jónsdóttir matreiðslumaður
Nám í Hótel- og veitingaskóla Íslands og Hótel Sögu.
Var valin matreiðslunemi ársins af Klúbbi Matreiðslumeistara við útskrift.
Guðlaug starfaði á Hótel Sögu í nokkur ár eftir útskrift og rak síðan ásamt Karli veitinga- og gististað á Nesjavöllum áður en hún fluttist til Ísafjarðar. Þar kenndi hún matreiðslu á matartæknibraut Menntaskólans á Ísafirði í einn vetur og hefur síðan starfað á Hótel Ísafirði.
Netfang: [email protected]

 

 

 

 

Sjá matseðil kvöldsins í Viðburðardagatali Freisting.is hér

 

Heimild:
Vestfirska blaðinu Bæjarins besta
Skg.is

 

[email protected]

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Í dag starfar Smári hjá Tónaflóði heimasíðugerð. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Auglýsingapláss
Click to comment

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið