Vertu memm

Bocuse d´Or

Viktor og félagar elda grænmetisrétt í Bocuse d’ Or

Birting:

þann

Viktor Örn Andrésson - Besti fiskrétturinn

Viktor landaði eftirminnilega 5. sæti og fékk bestu fiskverðlaun í evrópu forkeppni Bocuse d´Or í maí á þessu ári.

Bocuse d´Or Heimsmeistarakeppni einstaklinga tilkynnti aðalhráefnið sem keppendur elda úr þann 24-25.janúar í Lyon Frakklandi. Viktor Örn Andrésson keppir fyrir íslandshönd.
Hráefnið sem keppendur munu elda úr er 100% grænmetis réttur án eggja og mjólkurvara VEGAN. Keppendur framreiða fjórtán diska fyrir dómara. Þetta er í fyrsta skipti sem grænmetis réttur er í Bocuse d´Or.

Í fréttatilkynningu segir að ásamt Vegan réttinum þurfa keppendur að matreiða hinn fræga Bresse kjúkling og skelfisk sem verður framreiddur á glæsilegu silfur fati sem kostar svipað og nýr lítill fólksbíll.

Keppendur þurfa að sameina þessi tvö hráefni ásamt meðlæti á fat fyrir fjórtán manns.  Bresse kjúklingurinn og skelfiskur var einmitt aðalhráefnið í fyrstu Bocuse d´Or keppninni árið 1987.

Verður gaman að fylgjast með Viktori og hans teymi takast á við þetta verkefni. Viktor landaði eftirminnilega 5. sæti og fékk bestu fiskverðlaun í evrópu forkeppni Bocuse d´Or í maí á þessu ári.

Bocuse d´Or hinn óumdeilda heimsmeistarakeppni einstaklinga í matreiðslu heldur upp á 30 ára afmælið sitt í janúar 2017.

Bocuse d´Or Academia Íslands hlakkar til að sjá sem flesta í Lyon 24-25 janúar 2017 að hvetja okkar mann áfram.

Mynd: Etienne Heimermann

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Í dag starfar Smári hjá Tónaflóði heimasíðugerð. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið