Vertu memm

Vín, drykkir og keppni

Vel heppnuð bjórhátíð í Hveragerði – „Þetta verður klárlega endurtekið aftur…“ – Myndir

Birting:

þann

Bjórhátíð - Ölverk brugghús í Hveragerði - 2021

Vel heppnuð bjórhátíð.
Nær allir framleiðendurnir saman á mynd.

Vegleg bjórhátíð var haldin 22. – 23. október s.l. þar sem 28 úrvals-framleiðendur, 300 gestir komu saman og útkoman var stanslaust fjör.  Hátíðin var haldin í alvöru ´tropical´ gróðurhúsi sem er staðsett í Þelamörk 29, miðsvæðis í Hveragerði.

Það var Ölverk brugghús í Hveragerði, sem hafði veg og vanda af skipulagningu bjórhátíðarinnar.

Uppselt var á sjálfa bjórhátíðina, en hægt var að kaupa miða í eftirpartýið, en þar hélt Rebekka Ashley eða DJ RASLEY uppi fjörinu. Bjartmar Guðlaugsson tónlistarmaður spilaði í sjálfri hátíðinni.

Með fylgir listi framleiðenda sem voru á hátíðinni:

– Húsavík Öl ( Húsavík )

– The Brothers Brewery ( Vestmannaeyjar )

– Víking brugghús ( Akureyri )

– Litla brugghúsið ( Garðinum )

– Malbygg ( Reykjavík )

– Og Natura ( Hafnarfjörður )

– Smiðjan brugghús ( Vík )

– Stereo bar ( Reykjavík )

– Agla gosgerð ( Reykjavík )

– Eimverk distillery ( Garðabæ )

– Borg brugghús ( Reykjavík )

– Álfur brugghús ( Reykjavík )

– Böl brugghús ( Reykjavík )

– Session Craftbar ( Reykjavík )

– Ölverk brugghús ( Hveragerði )

– Ægir brugghús ( Reykjavík )

– RVK brewing ( Reykjavík )

– Icelandic Glacial ( Ölfus )

– Beljandi brugghús ( Breiðdalsvík)

– Austri brugghús ( Egilsstaðir)

– Gæðingur brugghús ( Kópavogur)

– Ölvisholt brugghús ( Flóahrepp )

– Segull 67 brugghús ( Siglufjörður )

– Mjólkursamsalan ( Reykjavík )

– KHB Brugghús ( Borgarfjörður Eystri )

Vel heppnuð bjórhátíð og skipuleggjendur í skýjunum segja meðal annars í tilkynningu að þetta verður klárlega endurtekið aftur í október 2022.

Með fylgja myndir frá bjórhátíðinni sem að Dagný Dögg Steinþórsdóttir tók:

Myndir: facebook / Ölverk / Dagný Dögg Steinþórsdóttir

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið