Vertu memm

Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel

Veitingastaðurinn Sjáland opnar – Sjáðu myndirnar af staðnum, kokteilunum og matnum

Birting:

þann

Sjáland við Arnarnesvoginn í Garðabæ

Sjáland við Arnarnesvoginn í Garðabæ.
Mynd: Ari Magg

Sjáland er nýr veitingastaður sem staðsettur er við Ránargrund 4 við Arnarnesvoginn í Garðabæ.  Glæsilegur veitingastaður sem býður upp á fjölbreytta möguleika, veislusal, veitingastað, kaffihús ofl.

Yfirmatreiðslumenn Sjálands eru þeir Ólafur Ágústsson, Rúnar Pierre Heriveaux og Víðir Erlingsson.

Veislusalur Sjálands tekur allt að 200 manns í sæti, ásamt því að veitingastaður Sjálands tekur 80 í sæti og 300 til 400 manns í standandi pinnaveislu. Hægt er að opna á milli veislusals og veitingahúss sem býður uppá skemmtilega möguleika.

Sjáland við Arnarnesvoginn í Garðabæ

Með ráðstefnu og tónleika uppsetningu er hægt að taka á móti 250 manns í sæti.

Sjáland við Arnarnesvoginn í Garðabæ

Stórt og mikið útisvæði er við Sjáland sem er á tveimur hæðum með stórbrotið útsýni.

Boðið er upp á spennandi matseðil sem sameinar nútíma norræna matargerð og ítalska flatbökuðhefð.

Kokteilseðill af bestu gerð ásamt gott úrval af bakkelsi og girnilegum hnallþórum fyrir kaffihúsið.

https://www.instagram.com/p/B_99dpPAcp8/

Viðtökur eru greinilega góðar í veislusalinn, þar sem einungis nokkrar lausar dagsetningar eru í maí og júní.

Opnunartími Sjálands er alla daga frá kl. 11:30 til 23:00

Skoðaðu Sjáland í þrívídd með því að smella á eftirfarandi vefslóðir:

Heildarhúsið

Veitingahúsið

Veislusalurinn

Skoðið heimasíðu staðarins með því að smella hér.

Myndir

Sjáland – Ljósmyndari: Ari Magg

Sjáland við Arnarnesvoginn í Garðabæ

Maturinn – Ljósmyndari: Sigurjón Ragnar

Sjáland við Arnarnesvoginn í Garðabæ

Fallegt útsýni

Kokteilar- Ljósmyndari: Sigurjón Ragnar

Sjáland við Arnarnesvoginn í Garðabæ

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið