Vertu memm

Frétt

Veitingastaðir mega hafa opið til kl. 21.00

Birting:

þann

Veitingastaður

Heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögur sóttvarnalæknis um hertar samkomutakmarkanir á höfuðborgarsvæðinu og taka þær gildi í morgun, 7. október. Samkomutakmarkanir sem kynntar voru í gær gilda óbreyttar annars staðar á landinu. Gildistími þessara takmarkana er til og með 19. október.

Með höfuðborgarsvæðinu er átt við Reykjavík, Seltjarnarnesbæ, Mosfellsbæ, Kjósarhrepp, Hafnarfjarðarkaupstað, Garðabæ og Kópavog.

Hertar takmarkanir fela í sér eftirfarandi:

  • Nálægðarmörk 2 metrar: Nálægðarmörk verða 2 metrar. Það á einnig við í öllum skólum, að undanskildum börnum fæddum 2005 og síðar.
  • Þjónusta sem krefst snertingar eða mikillar nándar: Starfsemi og þjónusta sem krefst snertingar eða ef hætta er á snertingu milli fólks eða mikillar nálægðar er óheimil. Þetta á við svo sem um hárgreiðslustofur, snyrtistofur, nuddstofur, húðflúrunarstofur og aðra sambærilega starfsemi. Framangreint á þó ekki við um starfsemi heilbrigðisstarfsfólks við veitingu heilbrigðisþjónustu en í þeim tilvikum er skylt að nota andlitsgrímur.
  • Verslanir: Viðskiptavinum verslana verður skylt að bera andlitsgrímur ef ekki er hægt að tryggja a.m.k. 2 metra á milli einstaklinga sem ekki eru í nánum tengslum.
  • Sund- og baðstaðir: Sund- og baðstöðum verður lokað.
  • Íþróttir og líkamsrækt innandyra óheimil: Líkamsrækt, íþróttastarf og sambærileg starfsemi sem krefst snertingar eða hætta er á snertingu á milli fólks eða mikilli nálægð, eða þar sem notkun á sameiginlegum búnaði getur haft smithættu í för með sér er óheimil innandyra.
  • Íþróttir utandyra: Íþróttir utandyra eru heimilar en áhorfendur á íþróttaviðburðum utandyra skulu ekki vera fleiri en 20 í hverju rými. Áhorfendur skulu bera grímu og sitja í merktum sætum.
  • Sviðslistir: Á viðburðum svo sem í leikhúsum, kvikmyndahúsum, á tónleikum o.þ.h. mega gestir ekki vera fleiri en 20 að hámarki. Gestir skulu allir bera grímu og sitja í merktum sætum.
  • Veitingastaðir: Þeir veitingastaðir sem mega hafa opið (krár og skemmtistaðir skulu vera lokaðir) mega ekki hafa opið lengur en til kl. 21.00.

Börn fædd 2005 og síðar:

  • Skólasund: Þrátt fyrir lokun sundstaða er heimilt að halda úti skólasundi fyrir börn fædd 2005 og síðar.
  • Íþrótta- og æskulýðsstarfsemi og tómstundir barna sem eru fædd 2005 og síðar er  heimil.
  • Keppnisviðburðir: Keppnisviðburðir barna sem fædd eru 2005 og síðar þar sem hætta er á blöndun hópa umfram hefðbundnar æfingar eru óheimilir.
  • Nálægðar- og fjöldamörk: Líkt og áður gilda nálægðar- og fjöldamörk ekki um börn fædd 2005 og síðar.

Minnisblað sóttvarnalæknis

Mynd: úr safni

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Í dag starfar Smári hjá Tónaflóði heimasíðugerð. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið