Vertu memm

Frétt

Veitingastaðir Magga meistara til sölu

Birting:

þann

Magnús Ingi Magnússon - Maggi meistari - Veitingastaður

Eins og kunnugt er þá lést matreiðslumeistarinn og gleðigjafinn Magnús Ingi Magnússon, betur þekktur sem Maggi meistari, í nóvember s.l. aðeins 59 ára gamall.

Af þeim ástæðum eru til sölu veitingastaðirnir Sjávarbarinn, Grandagarði 9 og Matarbarinn, Laugavegi 178.

Til greina kemur að selja staðina saman eða sem sjálfstæðar einingar.

Sjávarbarinn sérhæfir sig í fersku sjávarfangi og er með langa rekstrarsögu. Staðurinn er þekkt vörumerki, hefur einkunnina 4.5 á Trip advisor, með mörg mjög góð „review“ og með Certificate of Excellence 2017 – 2019.

Magnús Ingi Magnússon - Maggi meistari - Veitingastaður

Matarbarinn sérhæfir sig í heimilismat en hefur verið stuttan tíma í rekstri. Staðurinn hefur einkunninna 5.0 á Tripadvisor.

Báðir staðirnir eru mjög vel búnir tækjum, með tilbúnar vefsíður og góðan sýnileika á samfélagsmiðlum.

Einnig er möguleiki að leigja staðina með forkaupsrétti.

Áhugasamir snúi sér til Jóns Egilssonar hjá JA lögmannsstofu. Hægt er að hafa samband við hann í með því að senda póst á netfangið [email protected] eða í síma 568-373.

Magnús Ingi Magnússon - Maggi meistari - Veitingastaður

Magnús Ingi Magnússon - Maggi meistari - Veitingastaður

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið