Vertu memm

Markaðurinn

Veitingahús verðlaunuð af Icelandic Lamb – Myndir

Birting:

þann

AWARD OF EXCELLENCEFöstudag 31. mars s.l. veittu íslenskir sauðfjárbændur viðurkenningar þeim samstarfsveitingahúsum sem þykja hafa skarað fram úr við að kynna íslenskt lambakjöt fyrir erlendum ferðamönnum. Viðurkenningin ber enska heitið „AWARD OF EXCELLENCE“ sem rímar við annað markaðsefni sauðfjárbænda sem gagngert er beint til erlendra ferðamanna og er á ensku.

Þetta var í fyrsta sinn sem slíkar viðurkenningar eru veittar. Þriggja manna dómnefnd skipuð þeim Hafliða Halldórssyni matreiðslumanni, sem er formaður, Sigurlaugu M. Jónasdóttur útvarpskonu hjá RÚV og Dominique Plédel Jónsson hjá SlowFood Reykjavík, valdi staðina sem hlutu viðurkenningu að þessu sinni. Áætlað er að þetta verði árviss viðburður.

Yfir 60 íslenskir veitingastaðir eru samstarfsaðilar bænda í verkefninu Icelandic Lamb og setja íslenskt lambakjöt í öndvegi. Árangurinn hefur farið fram úr björtustu vönum og sala á lambakjöti hjá samstarfsstöðunum hefur aukist verulega samhliða samvinnunni. Þetta er hluti af stærra verkefni undir yfirskriftinni Aukið virði sauðfjárafurða.

Þeir staðir sem hlutu viðurkenningu að þessu sinni eru:

  • Fiskfélagið
  • Fiskmarkaðurinn
  • Hótel Smyrlabjörg í Suðursveit
  • Íslenski Barinn
  • Gallery Restaurant  Hótel Holti
  • Grillið Hótel Sögu
  • Lamb Inn í Eyjafjarðarsveit
  • Matur og Drykkur
  • Smurstöðin í Hörpu
  • Vox á Hilton Hótel Reykjavík

Meðfylgjandi myndir eru frá verðlaunaathöfninni á Hótel Sögu:

Icelandic Lamb verðlaunar veitingahús

Fiskfélagið

Icelandic Lamb verðlaunar veitingahús

Fiskmarkaðurinn

Icelandic Lamb verðlaunar veitingahús

Hótel Smyrlabjörg í Suðursveit

Icelandic Lamb verðlaunar veitingahús

Íslenski Barinn

Icelandic Lamb verðlaunar veitingahús

Gallery Restaurant Hótel Holti

Icelandic Lamb verðlaunar veitingahús

Grillið Hótel Sögu

Icelandic Lamb verðlaunar veitingahús

Lamb Inn í Eyjafjarðarsveit

Icelandic Lamb verðlaunar veitingahús

Matur og Drykkur

Icelandic Lamb verðlaunar veitingahús

Smurstöðin í Hörpu

Icelandic Lamb verðlaunar veitingahús

Vox á Hilton Hótel Reykjavík

 

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið