Vertu memm

Keppni

Úrslit úr forkeppni Besta skinka Íslands 2018

Birting:

þann

Frá forkeppni Besta skinka Íslands 2018

Dómnefndin

Meistarafélag kjötiðnaðarmanna heldur nú í fyrsta sinn keppnina „Besta skinka Íslands 2018“ og er hún í tveimur áföngum.

Fyrsti áfangi var undankeppnin en hún var haldin í Hótel og matvælaskólanum í Mk nú á dögunum og voru hátt í þrjátíu vörur skráðar í keppnina. Hér var um að ræða blindsmakk, án vitneskju um hver framleiðandinn var. Það eina sem dómnefndin hafði var númer sem vörurnar fengu fyrir keppni af ritara keppninnar og engin nema ritari vissi hver átti þá vöru.

Eftir að dómarar höfðu skoðað og dæmt, stóðu eftir þrjár vörur sem síðan munu keppa um „Besta skinka Íslands 2018“ (raðað í stafrófsröð eftir heiti á skinku):

  • Hunangsskinka – Höfundur: Oddur Árnason – Sláturfélag Suðurlands
  • Mexicoskinka – Höfundur: Oddur Árnason – Sláturfélag Suðurlands
  • Ostaskinka – Höfundur: Jón Þorsteinsson – Esjan Gæðafæði

Hverjum keppanda var heimilt að senda eins margar vörur (skinku) og hann vildi til forkeppninnar. Nánari upplýsingar um keppnisfyrirkomulag ofl. hér.

Eftirfarandi fyrirtæki tóku þátt í forkeppni: Sláturfélag Suðurlands, Esja- gæðafæði, Síld og fiskur, Norðlenska og Stjörnugrís.

Dómarar voru:

  • Edvald Sveinn Valgarðsson – Yfirdómari
  • Þorsteinn Þórhallsson
  • Magnús Friðbergsson
  • Ingólfur Þ. Baldvinsson
  • Arnar Sverrisson
  • Hreiðar Örn Zoega Stefánsson

Umsjón með skipulagi var Sigurfinnur Garðarsson.

Þátttaka var opin fyrir starfandi kjötvinnslur/kjötbúðir og öll matvælafyrirtæki með tilskilin leyfi.

Seinni áfangi er úrslitakeppnin og er áætlað að hún verði haldin í febrúar 2018, en það verður auglýst vel og vandlega hér á veitingageirinn.is og í viðburðardagatalinu hér.

 

Myndir: Þorsteinn Þórhallsson formaður fagkeppnisnefndar Meistarafélags kjötiðnaðarmanna

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið