Á sunnudaginn fóru fram úrslit í Sumarkokteil Finlandia 2019 og það er óhætt að segja að keppnin milli barþjóna hafi verið mikil.
Keppnin var á milli þeirra 10 barþjóna sem komust áfram úr forkeppninni en þar var dómnefnd frá Finlandia undir handleiðslu Pekka Pellinen, Finlandia Vodka Global Master Mixologist sem valdi 10 bestu drykkina sem fóru í úrslitin í gær.
Íslensk dómnefnd fór svo á milli vinnustaða barþjónanna og dæmdi á þeirra bar. Þegar dómnefndin hafði smakkað og skoðað þá drykki sem voru í keppninni átti hún ærið verk fyrir höndum því heilt yfir voru blöndurnar allar afbragðsgóðar og skoruðu allar mjög hátt.
Jóhann og dómnefndin
Eftir að stigin voru kunngerð var það Jóhann B. Jónasson hjá Eiriksson Brasserie með drykkinn „Grapefruit & Tonic“ sem tók sigurinn. Jóhann fer svo fyrir hönd Íslands á Finlandia Midnight Sun í júní þar sem Jóhann mun vinna með 30 barþjónum víðsvegar um heiminn í hjarta Finnlands og njóta sumarsólstöðunar í góðra barþjóna hópi.
„Grapefruit & Tonic“
60 ml Finlandia Grapefruit Vodka
30 ml Sérútbúið Grape síróp (uppskrift fyrir neðan)
2 skvettur Bittermens hopped grapefruit bitters
200 ml Fever-Tree Mediterranean tonic
Byggt í stóru vínglasi fyllt með klaka og hrært saman
Skreytt með þurrkaðri Grapealdin sneið og sprota af myntu
Uppskrift af sérútbúnu grape sírópinu
300 ml ferskur grapesafi
300 ml ferskur sítrónusafi
10 gr grape börkur
450 gr hvítur sykur
Sameinið safa og sykur í potti og látið ná suðu
Þegar suðan kemur upp takið af hellunni og bætið við berkinum og látið hann marinerast á meðan lögurinn kólnar
Þegar lögurinn hefur kólnað sigtið þá síropið og setjið á flösku.
Fyrir þá sem treysta sér ekki í þetta, þá er bara að kíkja í heimsókn á Eiriksson Brasserie en drykkurinn er kominn á seðil þar. Mælum með að prófa.
Keppendur sem komust í úrslit voru:
Grétar Matthías, Grillmarkaðnum
Jóhann B. Jónasson, Eiríksson Brassarie
Tiago Jorge, Sushi Social
Daniel Kava, Sushi Social
Austumas Maliauskas, Pablo Discobar
Ísak Friðriksson, Bastard
Elísa Rún Geirdal, Sæta Svínið
Andrzej Bardzinski, Public House
Svandís Frostadóttir, Sushi Social/Club Austur
Emil Þór Emilsson, Sushi Social
Dómnefnd stóð saman af:
Tómas Kristjánsson, Forseti barþjónaklúbbsins
Tobba Marinós, Blaðamaður og sælkeri
Einar Smárason, Fyrir hönd umboðsaðila
Íris Ann Sigurðardóttir, Veitingamaður
Vídeó
Friðbjörn Pálsson vörumerkjastjóri Finlandia Vodka á Íslandi vill þakka öllum barþjónum sem tóku þátt kærlega fyrir þátttökuna.