Vertu memm

Markaðurinn

Um 5 þúsund kjötsúpuskammtar runnu ljúflega ofan í landsmenn – Myndir

Birting:

þann

Kjötsúpudagurinn 2021

Óhætt er að segja að líf og fjör hafi verið síðastliðinn laugardag á Skólavörðustíg þegar fyrsta vetrardegi var fagnað og veitinga- og verslunarmenn ásamt bændum buðu upp á sjö kjötsúpustöðvar um allan stíginn þar sem hver og einn hafði sína útgáfu af þjóðarrétti Íslendinga.

Sjá einnig:

Þessi veitingahús taka þátt í Kjötsúpudeginum á Skólavörðustíg

5 þúsund fjölbreyttir kjötsúpuskammtar

Áætlað er að um 5 þúsund fjölbreyttir kjötsúpuskammtar hafi runnið ofan í gesti og gangandi sem kunna vel að meta þetta árlega framtak verslunar- og veitingamanna á Skólavörðustíg með stuðningi frá íslenskum bændum.

Kjötsúpudagurinn var nú haldinn í 18. sinn og á uppruna sinn í því þegar Ófeigur Björnsson í Gullsmiðju Ófeigs og Jóhann Jónsson í Ostabúðinni leiddu saman hesta sína til að gera daginn að veruleika og vekja með því athygli á Skólavörðustíg og þeirri verslun og þjónustu sem þar er í boði.

Fyrsti vetrardagur varð fyrir valinu þar sem móðir Ófeigs hafði alltaf gert kjötsúpu þann dag. Segja má að Kjötsúpudagurinn sé ein af fyrstu sjálfssprottnu hátíðunum í miðbænum sem hefur svo sannarlega laðað að gesti og gangandi en árlega koma um tíu þúsund manns til að bragða á hinum ýmsu tegundum af íslenskri kjötsúpu.

Kjötsúpudagurinn 2021

„….ánægja með fjölbreytni á kjötsúpustöðvunum“

„Við erum í skýjunum með þennan dag og viðtökurnar sem við fengum á öllum súpustöðvunum. Það var mikið þakklæti hjá Íslendingum og erlendu ferðmönnunum sem áttu leið hjá og nú sem fyrr kláruðust allir súpuskammtarnir töluvert fyrir auglýstan lokunartíma svo fólk kann vel að meta þetta framtak.

Örlítill rigningarskúr sem kom á tímabili virtist ekki hafa mikil áhrif og var almenn ánægja með fjölbreytni á kjötsúpustöðvunum þar sem þjóðarrétti Íslendinga var gert hátt undir höfði,“

segir Gústav Axel Gunnlaugsson veitingamaður á Sjávargrillinu.

Kjötsúpudagurinn 2021

„Matarmenningin okkar er auðlind…“

„Við hvetjum auðvitað Íslendinga til að elda kjötsúpu heima á næstunni í öllum þeim útgáfum sem leynast í eldhúsum landsmanna, og fólk haldi þessari hefð okkar á lofti um ókomin ár.

Matarmenningin okkar er auðlind sem við þurfum að hlúa að og kynna fyrir ungu fólki og erlendum gestum.“

Segir Hafliði Halldórsson verkefnastjóri hjá Bændasamtökum Íslands.

Myndir: aðsendar

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið