Vertu memm

Sverrir Halldórsson

Tívolí, Tívolí, Tívolí | Veitingarýni: Bæjarins bestu og Smurstöðin

Birting:

þann

Stuðmenn

Stuðmenn

Þegar ég fór að að reyna að para saman mat við Tívolí plötu Stuðmanna sem þeir gáfu út árið 1976, þá varð mér hugsað hvaða staður væri óbreyttur frá því ári og eini staðurinn sem ég fann var Bæjarins bestu í Tryggvagötu.

Lá leiðin í hádeginu þangað og þjóðarréttur landans pantaður, þ.e. ein með öllu og kók og fjanda kornið það smakkast alltaf eins, sem er grunnurinn að vinsældum þeirra, svo fór maður í bíltúr og var bara slakur.

Um kvöldið var ég mættur á Smurstöðina í Hörpunni, nýr veitingastaður á jarðhæðinni og lét smyrja, en aðalsmerki þeirra er smurbrauð og þar sem smurbrauð eins og við þekkjum það, er upprunnið frá Danmörku og Tívolí er í Danmörku var þetta prýðistenging.

Jóhannes Stefánsson matreiðslumeistari og Guðni Grétarsson framreiðslumeistari

Jóhannes Stefánsson matreiðslumeistari og Guðni Grétarsson framreiðslumeistari

 

Þeir voru með tvennutilboð fyrir tónleikagesti, sem samanstóð af:

Rækjur og egg, sprödt kyllingaskind með spergli og skjaldfléttu. Naut með kóngasveppa-remúlaði, kerfil og stökkum lauk.

Rækjur og egg, sprödt kyllingaskind með spergli og skjaldfléttu.
Naut með kóngasveppa-remúlaði, kerfil og stökkum lauk.

Þetta voru mjög skemmtilegar útfærslur á brauðinu og spilaði bragðið vel saman á báðum sneiðunum, flott.

Í eftirrétt fékk ég smá sýnishorn á diski sem voru eftirfarandi:

Eftirréttur

Eftirréttur

Sítrusbláberjatart með hvítu súkkulaði

Þetta er sú albesta berjakaka sem ég hef smakkað og sítrónubragðið sem kemur manni sannarlega á óvart, má til gamans segja að það er ekkert smjör í þessari tertu.

Súkkulaðikaka úr 100% kakóbauna og ávaxtasúkkulaði

Löguð úr Omnom súkkulaði og þvílíkt sælgæti ekta súkkulaðibragð ekki einhver sykurleðja, eina kannski aðeins og mikið af hnetum.

Brennt krem með íslenskum kryddum, þunnum marengs og uppskeru haustsins

Vá hvað þetta er gott með svona chunky rabbabara og athugið að það er enginn rjómi í þessu, heldur er mjólk.

Íslenskir ostar með reyniberjahlaupi

Framreiddir vel þroskaðir og algjör unaður og ekki skemmdi reyniberjahlaupið með svona vott af appelsínubragði.

StuðmennEr hér var komið var maður orðinn svolítið síður, en sem betur fer var stutt í lyftuna til að fara upp á 3. hæð í sætið sitt og njóta þess besta frá Stuðmönnum flytja Tívolí plötuna á tónleikum og eins og þeim er vant þá brugðust þeir ekki væntingum sem gerða hafa verið til þeirra.

Endum hér á stórskemmtilegu lagi Tívolí í nýjum búningi Stuðmanna, af endurútgefinni samnefndri plötu. Um er að ræða plötuna í heild sinni sem kom út fyrst 1976 og er af mörgum talin ein best poppplata Íslandssögunnar. Búið er að auka hljómgæðin á plötunni og 6 aukalögum.

Myndband frá tónleikunum:

Algjör tónlistaorgía og það ofaní matarorgíu, ég var dauðuppgefinn er ég skreið upp í rúm og sofnaði og örugglega dreymt einhverja orgíu.

 

twitter og instagram icon

† 1956-2015 | Sverrir er matreiðslumeistari, en hann lærði matreiðslu á Hótel Sögu og var við nám í hótelstjórnun í Álaborg. Hann hefur starfað mjög víða, m.a. á veitingastöðum í Englandi og Danmörku. Einnig á stöðum hér heima, m.a. Hótel Sögu, Óperu, Holliday Inn, Ránni og Þotunni í Keflavík, Fossnesti á Selfossi. Sverrir er beinskeyttur, opinskár og harðsoðinn penni.

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið