Vertu memm

Frétt

Tilraunaverkefni um heimaslátrun hefst í haust

Birting:

þann

Kristján Þór og Guðfinna Harpa undirrita samkomulagið

Kristján Þór og Guðfinna Harpa undirrita samkomulagið

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Guðfinna Harpa Árnadóttir, bóndi á Straumi í Hróarstungu og formaður Landssamtaka sauðfjárbænda, undirrituðu í dag samkomulag um tilraunaverkefni um heimaslátrun.

Markmið verkefnisins er leita leiða til þess að auðvelda bændum að slátra sauðfé heima til markaðssetningar þannig að uppfyllt séu skilyrði regluverks um matvælaöryggi og gætt sé að dýravelferð og dýraheilbrigði. Þannig er leitast við að bæta afkomu sauðfjárbænda, stuðla að bættri dýravelferð og sterkari tengingu á milli neytenda og íslenskra frumframleiðenda matvæla.

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra:

„Þetta er mikilvægt skref í átt að því að auka frelsi bænda, auka verðmætasköpun og hvetja til nýsköpunar og þróunar. Sauðfjárbændur hafa lengi kallað eftir að fá tækifæri til að skoða möguleika þess að slátra heima og selja á markaði og styrkja þannig böndin milli neytenda og framleiðenda. Með þessu tilraunaverkefni erum við að svara þessu ákalli og leita leiða til að framkvæma þetta innan þess regluverks sem gildir.“

Tillögur að fyrirkomulagi verkefnisins voru unnar af aðgerðahópi sauðfjárbænda um heimaslátrun í samstarfi við atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið. Ráðuneytið fer með stjórn verkefnisins og mun taka saman niðurstöður við lok þess. Auglýst verður eftir þátttakendum á næstu dögum en áætlað er að sláturdagsetningar liggi fyrir í lok ágúst og að niðurstöður verkefnisins liggi fyrir í árslok 2020.

Með verkefninu er leitast við að auka möguleika bænda á að slátra heima og selja sínar afurðir. Til þess að unnt sé að markaðssetja afurðir sem slátrað hefur verið heima þarf að uppfylla ákvæði regluverks um matvælaöryggi, dýravelferð og hollustuhætti. Fyrirhugað er að bændur framkvæmi heimaslátrun sjálfir á bæjunum og opinbert eftirlit verði framkvæmt af dýralæknum á vegum Matvælastofnunar.

Kjöt af gripum sem slátrað verður í tilraunaverkefninu verður ekki selt.

Mynd: stjornarradid.is

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Í dag starfar Smári hjá Tónaflóði heimasíðugerð. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið