Vertu memm

Keppni

Þessi keppa í nemakeppni í bakstri 2019

Birting:

þann

Nemakeppni í bakstri hefst með forkeppni föstudaginn 8. febrúar n.k. í bakaradeild Hótel- og matvælaskólans í Menntaskólanum í Kópavogi.

7 keppendur eru skráðir og verður gaman að fylgjast með. Næstu daga verður hægt að fylgjast með á bakara-snappinu frá undirbúningi og keppninni sjálfri.

Á keppnisdag, þ.e. 8. febrúar verða borðunum með listaverkunum stillt upp í Björnsstofu í Hótel- og matvælaskólanum og eru gestir velkomnir frá kl 17:30 og klukkan 18:00 verður tilkynnt hverjir þrír keppa til úrslita 22. febrúar.

Keppendur eru (raðað í stafrófsröð):

  • Eyrún Margrét Eiðsdóttir, Reynir bakari
  • Eyþór Andrason, Bakarameistarinn
  • Fannar Yngvi Rafnarsson, Björnsbakarí
  • Hákon Hilmarsson, Aðalbakarinn Siglufirði
  • Jakob H. P. Burgel Ingvarsson, Guðna bakarí
  • Lena Björk Hjaltadóttir, Sandholt
  • Viktor Ingason IKEA bakarí

Verkefni forkeppninnar er:

A. 1 stór brauðategund 500 – 800 gr. 10 stk. af teg.
B. 1 smábrauðategund 30 stk. á 60- 80 gr.
C. 3 vínarbrauðstegundir 50 – 70 gr. eftir bakstur, 12 stk. af tegund.
D. Skraut-stykki. Frjálst þema. Stærð max 50x50x50.
E. Uppstilling á fyrirfram dúkað borð í Björnsstofu. Stærð ca. 120 x 80 cm. með hvítum dúkum.

Mynd: úr safni

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Í dag starfar Smári hjá Tónaflóði heimasíðugerð. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið