Vertu memm

Smári Valtýr Sæbjörnsson

Það hafa þegar um 5000 manns bókað hjá Vitanum næsta vetur | Vilja koma upp lendingarsvæði fyrir þyrlur

Birting:

þann

Vitinn í Sandgerði

Vitinn í Sandgerði

Stefán Sigurðsson matreiðslumeistari

Stefán Sigurðsson matreiðslumeistari

Eigendur veitingahússins Vitans í Sandgerði hafa áhuga á að koma upp aðstöðu til þess að þyrlur með matargesti sem vilja koma fljúgandi geti lent við veitingastaðinn. Óskað hefur verið eftir leyfi til að þyrlur fái að lenda á svæðinu á milli Þekkingarseturs Suðurnesja og starfssvæðis vélsmiðjunnar Hamars.

Það kom fyrirspurn frá ferðaþjónustufyrirtæki um hvort hægt væri að lenda þyrlu hérna. Það var vilji fyrir því í vetur að koma hingað með tvær þyrlur en veðrið spilað eitthvað inn í. Ef við sækjum ekki um leyfi fyrir þessu eins og nú og höfum leyfi frá bæjarstjórninni, þá þurfum við að sækja um slíkt í hvert einasta skipti. Það bara gengur ekki því það tekur svo langan tíma,

segir Stefán Sigurðsson, eigandi veitingahússins Vitans í Sandgerði í samtali við Víkurfréttir, og bætir við að margt efnað fólk komi til hans að borða.

Á föstudaginn komu 80 manns sem komið höfðu með einkaflugvél. Þau ætluðu að vera á landinu í þrjá daga og byrjuðu á því að koma til okkar. Síðan héldu þeir áfram í Bláa Lónið og eitthvað. Þetta er fólkið sem við viljum fá. Það hafa þegar um 5000 manns bókað hjá okkur næsta vetur.

Spurður um hversu vongóður hann sé um að leyfi fáist segir Stefán vera það.

Þeir leyfa okkur þetta, það er bara spurning um hvort við fáum að hafa pallinn á staðnum sem okkur langar að hafa hann.

Lendingarsvæðið yrði staðsett á milli Þekkingasetursins og gömlu bræðsluna í Sandgerði og er Vitinn um 2-3 mín. í göngufjarlægð.

Lendingarsvæðið yrði staðsett á milli Þekkingasetursins og gömlu bræðsluna í Sandgerði og er Vitinn um 2-3 mín. í göngufjarlægð.

Þyrla

Ferðaþjónustan í Sandgerði laðar að efnamikla ferðamenn.

Ólafur Þór Ólafsson

Ólafur Þór Ólafsson

Ólafur Þór Ólafsson, starfandi bæjarstjóri í Sandgerði, segir vinsælt að byggja upp starfsemi á Suðurnesjum tengdri ferðaþjónustu. Samvinna og þekking samfélaganna á svæðinu skipti þar miklu máli.

Eigendur Vitans hafa verið að fá fyrirspurnir um hvort hægt sé að taka á móti þyrluferðamönnum og sendu því erindi til okkar í bæjarstjórn. Við erum að velta þessu fyrir okkur með velviljuðum huga. Við viljum þó fyrst og fremst vanda okkur.

Erindi hafi verið sent til Samgöngustofu fyrir tveimur vikum til álits og mögulegrar leiðbeinslu.

Við bíðum eftir svari. Ferðaþjónustan í Sandgerði hefur verið að byggjast upp, tjaldstæðið er mikið notað og gisting í Nátthaga hefur verið uppbókuð. Við höfum fundið fyrir aukinni fjölgun ferðamanna hér,

segir Ólafur Þór.

 

Greint frá á vf.is

Myndir: Smári

 

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Í dag starfar Smári hjá Tónaflóði heimasíðugerð. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið