Vertu memm

Smári Valtýr Sæbjörnsson

Svona er dagurinn hjá Gumma og Mjöll á Kaffivagninum

Birting:

þann

Kaffivagninn

Meðfylgjandi er myndband sem sýnir hvernig lífið er á bak við tjöldin hjá Kaffivagninum úti á Granda.

Fyrst fræðumst við aðeins og setjum inn hér sögu Kaffivagnins sem einnig er hægt að nálgast á vefsíðu þeirra.

Sagan

Kaffivagninn var stofnaður árið 1935 af Bjarna Kristjánssyni og stóð þá á Ellingsenplaninu sem er á horni Pósthússtrætis og Tryggvagötu, á þessum tíma var Kaffivagninn vörubíll með yfirbyggðum palli. Fram yfir stríðsárin var Kaffivagninn í eigu Bjarna sem rak hann allan tímann.

Guðrún Ingólfsdóttir keypti vagninn af Bjarna í byrjun sjötta áratugs síðustu aldar þá var Kaffivagninn staðsettur vestur á Grandagarði í formi lítils húss á steinhjólum. Í húsinu komust 10-15 manns fyrir í einu við bekki út við gluggana. Á þessum árum var Reykjavík stærsta verstöð landsins og var oft vakað við löndun og fiskvinnslu allan sólarhringinn í Vesturhöfninni. Kaffivagninn opnaði eldsnemma á morgnanna á þessum árum og lögðu sjómenn og hafnarverkamenn leið sína þangað. Guðrún kom upp fyrsta björgunarhringnum í tengslum við Kaffivagninn, þar var einnig eini síminn á Grandanum lengi vel og margir komu til að hringja.

Skömmu eftir 1960 var Kaffivagninn stækkaður og Guðrún eignaðist meðeiganda, hana Ástu Thorarensen. Upp frá því fóru fleiri en sjómenn og hafnarverkamenn að koma í Kaffivagninn, til dæmis háskólastúdentar, leigubílstjórar og vörubílstjórar.

Hús Kaffivagnsins hefur verið í núverandi mynd frá því 1975 en Guðrún og Ásta seldu Kaffivagninn til Stefáns Kristjánssonar árið 1982. Stefán rak vagninn ásamt fjölskyldu sinni til 1. október 2013 þegar Kaffivagninn var seldur núverandi eigendum þeim Guðmundi Viðarssyni og Mjöll Daníelsdóttur. Það má samt segja að Kaffivagninn sé enn innan fjölskyldunnar því Stefán er móðurbróðir Mjallar.

Með nýjum eigendum hefur 21. öldin rutt sér til rúms inn á elsta starfandi veitingastað Reykjavíkur en Kaffivagninn er nú í fyrsta sinn kominn með vínveitingaleyfi og er farinn að bjóða upp á kaffidrykki og te í miklu úrvali frá fyrirtækinu Te & kaffi. Um síðsumar 2014 var ráðist í framkvæmdir og glæsilegur pallur byggður við austurgafl Kaffivagnsins með útsýni yfir höfnina og Hörpu.

Það var Kristinn Svanur Jónsson sem klippti og tók upp eftirfarandi myndband:

Henti í eina sjónvarps auglýsingu fyrir Kaffivagninn !!! Besti fiskur sem ég nokkurntíman smakkað!!!

Posted by Kristinn Svanur Jónsson on 31. ágúst 2015

 

Mynd: Skjáskot úr myndbandi

 

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Í dag starfar Smári hjá Tónaflóði heimasíðugerð. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið