Vertu memm

Smári Valtýr Sæbjörnsson

Súkkulaði gegn brjóstakrabbameini

Birting:

þann

Omnom og Göngum saman

Hildur Halldórsdóttir, verkefnastjóri hjá Omnom.

Nú í vikunni hófst sala á sérhönnuðu og sérframleiddu Omnom súkkulaði fyrir styrktarfélagið Göngum saman, en 100% af söluandvirði þess fer í rannsóknir á brjóstakrabbameini.

Omnom gaf alla sína vinnu; bæði hönnunina og súkkulaðið og þar sem kostnaður hjá Göngum saman er enginn, rennur allt söluandvirði beint til þessa nauðsynlega verkefnis.
Göngum saman fagnar 10 ára afmæli í ár og nálguðust forsvarsmenn samtakanna Omnom um einhvers konar samstarf af því tilefni sem leiddi til þessa rausnarlega framlags fyrirtækisins. Göngum saman Omnom súkkulaðið inniheldur 3 mismunandi tegundir súkkulaðis og fóru 400 pakkningar í sölu.  Hver pakkning kostar 3.500 krónur og eins og áður sagði fara 3.500 krónur af því til rannsókna á brjóstakrabbameini.

„Þegar kjarnakonurnar hjá Göngum saman leituðu eftir samstarfi var auðvelt að segja já.  Við vildum leggja okkar af mörkum til að styðja þetta mikilvæga verkefni og gefum því okkar framlag með stolti og ánægju svo fólk geti styrkt Göngum saman“

, segir Hildur Halldórsdóttir, verkefnastjóri hjá Omnom.

Göngum saman og Omnom efna til smakk- og söluveislu í húsnæði Omnom að Hólmaslóð 4 en auk þess er hægt að kaupa Göngum saman Omnom súkkulaðið í verslun Hlínar Reykdal að Fiskislóð 75, í verslun Aurum og Epal.

Styrktarfélagið Göngum saman styrkir grunnrannsóknir á brjóstakrabbameini og hefur veitt íslenskum vísindamönnum 70 milljónir í styrki frá upphafi. Göngum saman leggur áherslu á mikilvægi hreyfingar til heilsueflingar og vikulegar göngur félagsins eru opnar öllum áhugasömum. Upplýsingar um stað og stund er að finna á heimasíðu samtakanna gongumsaman.is og á facebook síðu félagsins.

Myndir: aðsendar

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Í dag starfar Smári hjá Tónaflóði heimasíðugerð. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið