Vertu memm

Viðtöl, örfréttir & frumraun

Steinar hefur störf hjá Bryggjunni Brugghús

Birting:

þann

Steinar Bjarki Magnússon

Steinar Bjarki Magnússon.
Mynd: aðsend / einkasafn

Steinar Bjarki Magnússon hefur tekið til starfa sem matreiðslumeistari á Bryggjunni Brugghús. Bryggjan Brugghús er sjálfstætt brugghús, veitingastaður og bar á Grandagarði 8 við Reykjavíkurhöfn í gamla húsnæði Bæjarútgerðar Reykjavíkur.

Bryggjan tekur um 300 manns í sæti

Yfirmatreiðslumeistari staðarins er Margrét Ríkharðsdóttir. Bryggjan tekur vel á 300 manns í sæti og svo bætist útisvæðið við. Staðurinn býður upp á mjög gott úrval af ferskum hágæða bjór beint úr brugghúsinu og sérsmíðaður vínskápur heldur auðugu vínsafni þeirra í fullkomnu hitastigi. Boðið er upp á fjölbreytta rétti úr sjávarfangi veiddu á íslandsmiðum auk hefðbundinna sérvalda rétti.

Margrét Ríkarðsdóttir

Margrét Ríkharðsdóttir er yfirmatreiðslumeistari staðarins.
Mynd: facebook / Bryggjan Brugghús

„Elvar á Bryggjunni Brugghúsi heyrði að ég væri að skoða mig um og hafði samband. Ég fór og hitti hann og sá að þetta væri eitthvað akkúrat fyrir mig. Þetta er stór staður með mikla möguleika. Ég vil krefjandi verkefni, þannig helst maður á tánum.“

Sagði Steinar í samtali við veitingageirinn.is, aðspurður um hvernig hann fékk starfið og bætir við:

„Eldhúsið er vel búið og rúmgott. Það stendur til að breyta og uppfæra það eftir áramót. Það gefur okkur nægan tíma til að pæla og teikna það upp eftir þörfum staðarins. Eldhúsið var sett upp á sínum tíma og vissu menn þá ekkert hvernig þetta færi. Það er kominn góð reynsla á það og nú vita allir hvers er þörfin.

Matargerðin er alveg í mínum stíl, rústik og góður matur.  Það er meira lagt upp úr bragði og áferð heldur en skrauti.  Fá atriði á hverjum disk og fær hráefnið að njóta sín.  Svo fáum við útrás í hugmyndavinnu með rétti dagsins.  Þar er allt leyfilegt og fá allir að taka þátt í þeirri vinnu.“

Bryggjan Brugghús

Gestir geta fylgst með bruggmeisturunum að störfum.
Mynd: facebook / Bryggjan Brugghús

Bryggjan Brugghús

Bryggjan býður upp á úrval af víni sem eru geymd í fullkomnu hitastigi úr sérsmíðuðu vínherbergi.
Mynd: facebook / Bryggjan Brugghús

Dælt er í glös viðskiptavina beint úr brugghúsinu

Barinn á Bryggjunni státar af 12 bjórdælum beint úr brugghúsinu sem dælt er í glös viðskiptavina sem hefur reynst einstaklega vel og hafa gestir verið mjög ánægðir með þessa upplifun.

„Svo er líka fróðlegt að fylgjast með brugginu. Það verður gaman að komast aðeins inn í það og vonandi að fá að taka þátt í því.  Það er samvinna á milli eldhúss og bruggdeildar.  Þegar event eru þá eru seðlar gerðir með það að leiðarljósi að samtvinna bjórinn og matinn.   Svo fer senn að líða að jólum og verðum við þá með skemmtilegan seðil.  Þar sem „hlaðborðið“ er borið fram á borð gesta. Hann er keyrður i bland sem „sharing“ og einstaklings diskar.

Með komu minni þá getum við líka bætt við okkur matreiðslunemum. Þar erum við að leita af duglegu, áhugasömu og metnaðarfullum einstaklingum til að koma til liðs við okkur.“

Sagði Steinar að lokum.

Bryggjan Brugghús

Bryggjan býður upp á glæsilegt útisvæði.
Mynd: facebook / Bryggjan Brugghús

Steinar Bjarki lærði fræðin sín á Perlunni sem var og hét, en hann hóf námið sitt árið 2004 og útskrifaðist árið 2008.  Steinar kláraði svo meistaranámið í Hótel og matvælaskólanum árið 2010.

Steinar hefur starfað á 19. hæð í Turninum í Kópavogi, Fiskmarkaðinum, Grillmarkaðinum, Steikhúsinu og nú síðast hjá Hafinu fiskverslun.

Jólamatseðill og jólahlaðborð

Bryggjan býður upp á þriggja rétta jólamatseðil:

Forréttur
Jólaplatti með bjórgrafinn lax sem er grafinn í fagnaðarerindinu jóla bjór Bryggjunnar, Ipa og bláberja marineraða síld, bjórgrafið lamb og rækjukokteil.

Aðalréttur
Andalæri með beikonkartöflumús, döðlumauki og appelsínu soðsósu

Eftirréttur
Bjórís, bakað hvítt súkkulaði, kirsuberjasósu og piparköku crumble

Jólahlaðborð
Að auki mun Bryggjan bjóða upp á jólahlaðborð í bruggsalnum á föstudags-, og laugardagskvöldum.

Heimasíða: www.bryggjanbrugghus.is

Facebook: Bryggjan Brugghús

Instagram: Bryggjan Brugghús

TripAdvisor: Bryggjan Brugghús

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Í dag starfar Smári hjá Tónaflóði heimasíðugerð. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið