Vertu memm

Frétt

Steinar Bjarki og Þorsteinn voru gestakokkar hjá Hamilton Johnsson

Birting:

þann

Chef Hamilton Johnson - Honeysuckle

Steinar Bjarki Magnússon, Hamilton Johnsson, Sigurður L. Hall og Þorsteinn Halldór Þorsteinsson

Í síðasta mánuði fór fram Sælkeravika í Washington dagana 12. til 19. ágúst og voru um 100 veitingastaðir sem tóku þátt í hátíðinni .  Þriggja rétta máltíð kostaði 22 dollara á mann í hádeginu og á kvöldin 35 dollara.

Íslandsvinurinn Hamilton Johnsson var með Norrænt þema á Ameríska veitingastaðnum Honeysuckle.

Chef Hamilton Johnson - Honeysuckle

Íslandsvinurinn Hamilton Johnsson

Hamilton hefur komið þrisvar til Íslands á vegum matarhátíðina Food & Fun og einnig tekið tvisvar þátt í Food & Fun í Finnlandi. Hamilton kemur frá Inman, Suður Karólínu, en hann útskrifaðist frá Johnson and Wales University í Charleston. Eftir útskrift fór Hamilton að vinna með matreiðslumeistaranum Frank Lee sem varð mikill áhrifavaldur á matreiðslu Hamilton.

Hamilton flutti til Wasington árið 2008, en þar fór hann að starfa hjá Jeffrey Buben á veitingarstaðnum hans Vidalia og þaðan lá leiðin hans til Honeysuckle.

Vídeó

Chef Hamilton Johnson - Honeysuckle

Hamilton Johnson er mikill húmoristi

Hamilton notar töluvert af íslensku hráefni, hugmyndum í réttina hjá sér.  Hann er mjög hrifinn af bleikju og þorski og einnig er skyr næstum eingöngu þar sem það á við.  Seytt rúgbrauð “icelandic rye bread – Thunderbread” er t.d. fast á matseðli hjá Honeysuckle.

Hamilton fékk til liðs við sig tvo íslenska matreiðslumenn í tengslum við Sælkeravikuna, en það voru þeir Steinar Bjarki Magnússon og Þorsteinn Halldór Þorsteinsson.

Food & Fun og Sigurður L. Hall, betur þekktur sem Siggi Hall, sáu um framkvæmdarhlið Íslandsdagana.

„Íslenska vikan á Honeysuckle heppnaðist afar vel og var fullt alla daga, bæði hádegi og kvöld. Afgreitt var skyr, bleikja, þorskur, brennivín, rúgbrauð ofl íslenskt fyrir uþb 350 manns á dag.“

Sagði Siggi í samtali við veitingageirinn.is

Steinar Bjarki hefur starfað til fjölda ára hjá fiskversluninni Hafið og sagði starfi sínu lausu mánaðarmótin júlí/ágúst og er nú á milli starfa.

Þorsteinn er nýútskrifaður sem matreiðslumaður en hann lærði fræðin sín á VOX á Hilton Reykjavík Nordica hótelinu. Bróðir Þorsteins er bakarinn & konditorinn Axel Þorsteinsson hjá Bouchon Bakery í Kúveit sem er í eigu stjörnukokksins Thomas Keller.

Aðspurður um hvernig þetta hefði komið til svaraði Steinar:

„Við [Hamilton og Steinar] erum vinir og rætt þetta lengi. Ég hætti hjá Hafinu nú fyrir stuttu og í kjölfarið var ákveðið að ráðast í þetta spennandi verkefni. Algjörlega ósponsað og á okkar eigin vegum.“

Steinar og Þorsteinn buðu upp á glæsilegan matseðil eins og sjá má á meðfylgjandi myndum:

Chef Hamilton Johnson - Honeysuckle

Íslenski matseðillinn í heild sinni:

Chef Hamilton Johnson - Honeysuckle

 

Heimasíða Honeysuckle: www.honeysuckledc.com

Myndir og vídeó: aðsent

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið