Vertu memm

Markaðurinn

Stærsta Negroni vika frá upphafi

Birting:

þann

Stærsta Negroni vika frá upphafi

Á myndinni eru fyrir hönd Aðgengissjóð Reykjavíkur Þorleifur Gunnlaugsson og Ósk Sigurðardóttir framkvæmdastjóri Sjálfsbjargar og Sóley Kristjánsdóttir og Hlynur Björnsson frá Ölgerðinni sem er umboðsaðili Campari á Íslandi.
Ljósmynd: Þorgeir Ólafsson

Negroni vikan fór fram 13.-19. september og safnaði í ár fyrir Römpum upp Reykjavík en ágóði af Negroni sölunni rann til þessa mikilvæga málefnis að byggja 100 rampa á einu ári til að bæta aðgengi fyrir hreyfihamlaða í miðborginni.

Á fimmtudaginn s.l. var Römpum upp Reykjavík afhentur 150 þúsund króna styrkur en Negroni vikan er góðgerðarátak á sama tíma um allan heim. Metþátttaka var í ár en 20 staðir tóku þátt í Negroni vikunni og safnaðist töluvert meira fé en áður.

Erlendis gerðu 7 heimsþekktir barþjónar tilbrigði við hinn klassíska Negroni og hér heima leituðum við til þriggja af okkar bestu barþjónum sem tóku boðinu fagnandi og gerðu tilraunir með tilbrigði við klassískan Negroni en það voru Sævar yfirbarþjónn á Fjallkonunni, Alana yfirbarþjónn á Héðni og svo Ívan Svanur sem rekur Kokteilaskólann.

Þau prufuðu alls kyns aðferðir og ýmis tilbrigði s.s að eima, reykja og freyða Negroni og notuðu alls kyns tegundir af ginum og vermúðum en ómissandi þungamiðjan í Negroni er hinn fagurrauði Campari.

Negroni vikan verður haldin um allan heim 13. - 19. september

Negroni er skv. Drinks International annar mest seldi klassíski kokteill heims 7. árið í röð. Negroni er ókrýndur höfuðdrykkur barþjóna og þegar barþjónar hittast þá er ósjaldan skálað í Negroni en árlega er heil vika tileinkuð þessum göruga drykk til styrktar góðu málefni.

Punkturinn yfir i-ið er góður klaki og Klakavinnslan gaf sína vinnu og fór með sendingu af handskornum gæðaklaka á alla staðina barirnir gætu gert undurfagran Negroni og gæða upplifun. Meðal veitingastaða sem tóku þátt voru Miami, Héðinn, Veður, Enski barinn, Irishman, Apótekið, Kaldi, Fjallkonan og Petersen svítan.

 Nánar um Negroni vikuna hér.

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið