Vertu memm

Keppni

Skráning hafin í nemakeppni í bakstri

Birting:

þann

Hótel og matvælaskólinn í Menntaskólanum í Kópavogi

Hótel og matvælaskólinn í Menntaskólanum í Kópavogi

Forkeppni í nemakeppni í bakstri verður haldin föstudaginn 8. febrúar næstkomandi.  Keppnin fer fram í bakaradeild stofu v207 Í Hótel- matvælaskólanum í Menntaskólanum í Kópavogi.

Nánari upplýsingar um keppnina er hægt að lesa hér að neðan:

  • 1 stór brauðategund 500 – 800 gr.   10 stk. af teg.
    – Engar nánari skilgreiningar, frjálsar aðferðir.
  • 1 smábrauðategund 30 stk. á 60- 80 gr. eftir bakstur.
    – Þema : morgunverðar brauð.  Ekki leyft að rúlla smjöri eða smjörlíki í deigið. Að öðru leyti frjálst.
  • 3 vínarbrauðstegundir 50 – 70 gr. eftir bakstur
    – 12 stk. af tegund.
    – Frjáls úrvinnsla úr afgangi af deigi, þó að hámarki
    – úr 500 gr. af deigi.
  • Skraut stykki. Frjálst þema. Stærð max 50x50x50.
  • Uppstilling á fyrirfram dúkað borð í Björnsstofu.
    Stærð ca. 120 x 80 cm.  með hvítum dúkum.

Sérstök athygli skal vakin á því að ekkert annað en keppnisframleiðslan er leyfð á borðið.

Skráning fyrir 31. janúar 2019 sendist á netfangið [email protected] og einnig frekari fyrirspurnir varðandi keppnina.

Keppnisreglur í forkeppni:

  • Keppendur hafa 5 klst. sem þeir mega nota að vild.
  • allt mjöl og korn skal vera frá Kornax og verður það ásamt öllum grunn-hráefnum á keppnisstað.
  • Keppendur koma með öll hráefni vigtuð og tilbúin en ósamsett
  • Keppendur meiga koma með skrautdeig útrúllað, tilbúð til að skera út, fyllingar og glssúr.
  • Engar mjölblöndur (brauðamix) eru leyfðar.
  • Keppendum er heimilt að nota hjálparefni svo sem gernæringarefni, súrdeig, litarefni o.þ.h. að höfðu samráði við dómara.
  • Keppendur koma með það sjálfir, en tilkynna skal um slíkt fyrirfram.
  • Öll deig skulu vera fyrirfram útreiknuð og nákvæmlega löguð. Deig afgangar mega ekki vera meiri en 250 grömm í hverri deigtegund.
  • Reiknuð eru 5 refsistig fyrir hver byrjuð 250 grömm eftir það.
  • Keppendur verða að hafa lokið öllum frágangi á vinnustöð og í bakaríi ásamt uppstillingu á 5 klst.
  • Reiknuð eru 5 refsistig á hverjar byrjaðar 5 mínútur sem keppandi fer umfram 5 klukkustundir.
  • (keppandi stöðvaður eftir 15 mín.)
  • Þegar keppandi hefur lokið öllu skal hann láta dómara vita.

 

Mynd: úr safni

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Í dag starfar Smári hjá Tónaflóði heimasíðugerð. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið