Vertu memm

Keppni

Skráning er hafin í eftirréttakeppni ársins

Birting:

þann

Eftirréttur Ársins 2018

Eftirréttakeppnin “Eftirréttur Ársins“ verður haldin fimmtudaginn 18. október í Perlunni, nánar tiltekið við Út í bláinn sem er einstakt veitingahús staðsett undir glerkúpli Perlunnar. Töfrandi heimur þar sem skógur nemur við himinn, með óviðjafnanlegu útsýni í allar áttir.

Keppnisrétt hafa þeir sem lokið hafa sveinsprófi í matreiðslu, konditori og bakaraiðn eða eru á nemasamningi í fyrrnefndum greinum. Undantekningartilvik frá ofannefndu verða metin sérstaklega.

Þema keppninnar er “HOT STUFF”.

Hver og einn keppandi túlkar þemað eftir sínu höfði. Þeminn þarf að skila sér t.a.m. í hráefni, áferð, nafni, uppbyggingu osfrv.

Eftirfarandi hráefni eru skylduhráefni og þurfa að vera í eftirréttinum:

  • Cacao Barry Mexique 66% dökkt súkkulaði
  • Ken Láctea rjómi
  • Ein eða fleiri af eftirfarandi Capfruit ávaxtapúrrum:
  1. Sítróna
  2. Lime
  3. Yuzu
  4. Blóðappelsína
  5. Mandarína
  6. Appelsína
  7. Bergamot

Notkun á súkkulaði, púrrum og rjóma frá öðrum framleiðendum er ekki leyfileg í keppninni.

Keppendur fá ítarlega lýsingu á reglum og aðstöðu að lokinni skráningu og greiðslu á 5000 kr. staðfestingargjaldi. Þá fá keppendur einnig afhendan grunnhráefnapakka til æfinga frá Garra.

Gjaldið endurgreiðist þeim sem mæta samkvæmt tímaplani á keppnisstað.

Opnað verður fyrir skráningu fimmtudaginn 27. september kl. 10:00. Þrjátíu sæti eru í boði. Skráning hér. Athugið að einungis tveir aðilar geta skráð sig frá hverjum vinnustað. Nánari upplýsingar gefur Ívar í síma 8583005 eða [email protected]

Í fyrstu  verðlaun er eftirréttanámskeið erlendis hjá Cacao Barry.

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið