Vertu memm

Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel

RIF í Hafnarfirði: 12.000 gestir á 2 mánuðum

Birting:

þann

RIF er nýr veitingastaður í Hafnarfirði

Ævar Olsen yfirmatreiðslumaður

Að sögn Ævars hafa viðtökurnar farið fram úr björtustu vonum, en hann er yfirkokkur á nýja veitingastaðnum RIF í Hafnarfirði sem opnaði í júlí s.l., en staðurinn er staðsettur á 2. hæð í Firði verslunarmiðstöð.

Sjá einnig: RiF er nýr veitingastaður í Hafnarfirði

„Þetta hefur gengið alveg gríðarlega vel og það er í raun alltaf fullur staður hjá okkur. Frá því að við opnum á daginn og allt þar til við lokum er fullur salur af fólki,“

segir Ævar í samtali við Morgunblaðið.

Ævar hefur mikla reynslu af rekstri veitingahúsa hér á landi, en hann starfaði áður sem rekstrarstjóri TGI Fri­day’s í Smáralindinni í mörg ár ásamt því að setja veitingastaðinn Olsen Olsen á laggirnar. Aðspurður segist hann ekki vilja ræða fyrri störf heldur fremur einbeita sér að því sem framundan er. Staðurinn tekur 81 í sæti, en það sem af er hafa ríflega 12.000 manns snætt á RIF, að því er fram kemur í umfjöllun í Morgunblaðinu í dag.

Mynd: facebook / RIF restaurant

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Í dag starfar Smári hjá Tónaflóði heimasíðugerð. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið