Vertu memm

Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel

Ostabúðin opnar út á Granda

Birting:

þann

Ostabúðin - Fiskislóð 26, Reykjavík

Ostabúðin við Fiskislóð 26, Reykjavík

Jóhann Jónsson, matreiðslumaður, opnaði fyrst Ostabúðina á Skólavörðustíg árið 2000. Þar var boðið upp á áður óséð úrval af ostum og öðru góðgæti, auk þess sem töfraður var fram heitur matur í hádeginu.

Ostabúðin - Fiskislóð 26, Reykjavík

Jóhann Jónsson, matreiðslumaður

Jói bætti svo um betur og opnaði veitingastað við hlið búðarinnar árið 2015.

Nýr veitingastaður á Skólavörðustíg

Sá staður naut mikilla vinsælda og tók á móti fjölda fólks í kvöld- og hádegismat allt til ársins 2019, þegar staðurinn lokaði.

Ostabúðin á Skólavörðustíg lokar

Alhliða veisluþjónusta á granda

Ostabúðin - Fiskislóð 26, Reykjavík

Sannkölluð sælkeraveisla hjá veisluþjónustu ostabúðarinnar. Forréttur í matarboðið, en spjarar sig einnig vel sem veislubakki fyrir lengri veislur og samkomur. Inniheldur glæsilegt úrval osta ásamt sérvöldu kjötmeti og broti af því besta úr framleiðslueldhúsi Ostabúðarinnar. Borið fram með heimabökuðu brauði og tilheyrandi dressingum.

Aðdáendur heitreyktu gæsabringunnar þurfa þó ekki að örvænta, þar sem Jói og félagar opnuðu nýja Ostabúð um áramótin s.l. út á Granda og reka þar bæði glæsilegan veislusal og veisluþjónustu. Teymið hefur komið sér upp frábærri aðstöðu á Fiskislóð 26 og framleiðir þar áfram hinar sívinsælu vörur Ostabúðarinnar. Þar má helst nefna grafna og reykta kjötið þeirra, hina frægu heitreyktu gæsabringu, villibráðarpaté, sósur og dressingar.

Ostabúðin - Fiskislóð 26, Reykjavík

Fiskislóð 26.
Mynd: Smári / Veitingageirinn.is

Veisluþjónusta Ostabúðarinnar er líka á sínum stað. Eins og áður er boðið upp á fjölbreyttar veitingar í veislur af öllu tagi, osta- og kjötbakka, snittur, spjót, hátíðarveislur, villibráðarveislur og svo mætti lengi telja.

Funda- og veislusalur Ostabúðarinnar við Fiskislóð er með glæsilegasta móti og tekur um 100 manns í sæti eða 140 manns í standandi veislu. Hægt er að leigja salinn undir hvers kyns viðburðir og veisluhöld, svo sem fermingar, árshátíðir, stórafmæli, jólahlaðborð, brúðkaup o.fl. Einnig er boðið upp á þá þjónustu að fá veislumat sendan í heimahús eða aðra sali.

Fyrirtækjaþjónusta — heitur matur í hádeginu

Ostabúðin - Fiskislóð 26, Reykjavík

Fyrirtækjaþjónusta Ostabúðarinnar framreiðir heitan mat í hádeginu

Ostabúðin - Fiskislóð 26, Reykjavík

Heimilismatur af bestu gerð

Að lokum má nefna fyrirtækjaþjónustu Ostabúðarinnar, en hún framreiðir heitan mat í hádeginu úr fersku og góðu hráefni og sendir til fyrirtækja ásamt því að bjóða upp á hádegishlaðborð á virkum dögum.  Athugið að lokað er inn í matsal vegna óvissu sem nú ríkir vegna útbreiðslu COVID-19 veirunnar.  Vegna þessa þá býður staðurinn upp á tilbúin kvöldmat sem sent er til viðskiptavina.   Dýrindis matur að hætti Ostabúðarinnar sem einungis þarf að hita í ofni.

Ostabúðin - Fiskislóð 26, Reykjavík

Osabúðin hefur sett saman þessa dýrindis öskju sem þau kalla „Sóttkvíar sælkerinn“.
karfan inniheldur eftirfarandi:
Heitreykt Gæsabringa.
Grafið Ærfillet.
Villibráðarpate.
3 tegundir af íslenskum Dala osti.
Spænsk Serrano hráskinka.
Ástrík sælkerapopp.
Omnom súkkulaði.
Carr´s kex.
Hindberjavinagretta.
Púrtvínsrærð rifsberjagel.
Basilolía með kasjúhnetum og capers.
Ólífur.
Þessi dýrindis askja er á sértilboði á 9.900kr. út apríl 2020.

Myndir: facebook / Ostabúðin

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið