Vertu memm

Frétt

Ómerktur ofnæmisvaldur í Bónus Kjarnabrauði

Birting:

þann

Bónus Kjarnabrauð

Matvælastofnun vekur athygli á að Bónus Kjarnabrauð inniheldur ofnæmis- og óþolsvaldinn lúpínu án þess að það komi fram á umbúðum. Mistök áttu sér stað við pökkun og Myllan ehf. innkallar nú vöruna, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.

Innköllunin á eingöngu við um eftirfarandi lotu:

Vörumerki: Bónus
Vöruheiti: Kjarnabrauð
Best fyrir dagsetning: 15.09.2020
Framleiðandi: Myllan, Blikastaðavegi 2-8, 112 Reykjavík
Dreifing: Verslanir Bónus um land allt

Varan er skaðlaus fyrir þá sem ekki eru viðkvæmir fyrir lúpínu og afurðum hennar. Þeir neytendur sem eiga umrædda vöru og eru viðkvæmir fyrir lúpínu eða lúpínuafurðum eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga eða skila henni í þeirri verslun þar sem hún var keypt.

Mynd: aðsend

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Í dag starfar Smári hjá Tónaflóði heimasíðugerð. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið