Vertu memm

Frétt

Ómerkt mjólk í vorrúlludeigi

Birting:

þann

Vorrúlludeig frá Springhome

Matvælastofnun varar neytendur með mjólkurofnæmi eða -óþol við neyslu á vorrúlludeigi frá Springhome.  Innflutningsaðili vörunnar, Lagsmaður ehf (Fiska ehf), hefur innkallað vöruna af markaði í samráði við Heilbrigðiseftirlit Hafnafjarðar- og Kópavogssvæðis.

Matvælastofnun fékk tilkynningu og upplýsingar um vöruna í gegnum RASFF hraðviðvörunarkerfi Evrópu.

Innköllunin nær eingöngu til eftirfarandi:

Vörumerki:  Springhome
Vöruheiti:  TYJ Spring Roll Pastry
Framleiðandi:  Tee Yih Jia Food Manufacturing Pte. Ltd.
Lotunúmer/Best fyrir:   Allar framleiðslulotur/dagsetningar
Framleiðsluland:  Singapore
Geymsluskilyrði:  Frystivara
Dreifing:  Vefverslun Fiska.is, Asian supermarket Nýbýlavegi 14,  200 Kópavogi

Neytendur sem hafa ofnæmi/óþol fyrir mjólk eru beðnir um að neyta hennar ekki heldur farga eða skila í verslunina sem hún var keypt í.

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið