Vertu memm

Starfsmannavelta

Öllum starfsmönnum Kristjánsbakarís sagt upp störfum

Birting:

þann

Kristjánsbakarí á Akureyri

12. júní árið 1912 stofnaði Kristján Jónsson Brauðgerð Kr. Jónssonar á Akureyri.

Þrjátíu og fimm starfsmönnum Kristjánsbakarís á Akureyri hefur verið sagt upp störfum. Kristjánsbakarí var stofnað árið 1912 og er eitt elsta iðnfyrirtæki landsins.

Vil­hjálmur Þorláksson, framkvæmdastjóri Gæðabaksturs, sem á og rekur Kristjánsbakarí, segir í samtali við ViðskiptaMoggann að uppsagnirnar séu liður í endurskipulagningu fyrirtækisins. Verið sé að skerpa á hlutum og hagræða, m.a. vegna tekjufalls í kjölfar kórónuveirufaraldursins. Hann hafi gert reksturinn mjög þungan.

Vilhjálmur segir að reynt verði að endurráða sem flesta starfsmenn að lokinni endurskipulagningunni.

„Stór liður í þessum aðgerðum er að tryggja starfsemi Kristjánsbakarís á Akureyri.“

segir Vilhjálmur.

Fyrirtækið rekur tvö bakarí á Akureyri. Vilhjálmur segir að auk uppsagnanna fari framleiðsla á vörum undir merkjum Kristjánsbakarís sem seldar eru á höfuðborgarsvæðinu, framvegis fram í Reykjavík.

Nánari umfjöllun er að finna í ViðskiptaMogganum í dag.

Mynd: facebook / Kristjánsbakarí

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Í dag starfar Smári hjá Tónaflóði heimasíðugerð. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið