Vertu memm

Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel

Nýtt veitingahús opnar í Marshallhúsinu eftir áramót

Birting:

þann

Marshallhúsið

Marshallhúsið var byggt árið 1948

Leifur Kolbeinsson

Leifur Kolbeinsson
Mynd: kolabrautin.is

Nýtt veitingahús mun opna í Marshallhúsinu eftir áramót. Reksturinn verður í höndum Leifs Kolbeinsson oft kenndur við La Primavera. Leifur hefur gefið út matreiðslubækur, rak um árabil eitt vinsælasta veitingahús landsins La Primavera og stýrir öllum veitingarekstri í Hörpunni ásamt og Jóhannesi Stefánssyni betur þekktur sem Jói í Múlakaffi.

Á vef Morgunblaðsins sem fjallar nánar um málið hér, kemur fram að veitingahúsið nýja verður staðsett á neðstu hæð Marshallhússins.

Í fréttatilkynningu frá Reykjavíkurborg kemur fram að Nýlistasafnið, Gallerí Kling og Bang og Ólafur Elíasson flytji inn í hið glæsilega Marshallhús úti á Granda en húsið er í eigu Hb. Granda. Reykjavíkurborg mun leigja húsið til 15 ára.

Árið 1948 stofnuðu Reykjavíkurbær og hlutafélagið Kveldúlfur með sér sameignarfélagið Faxa sf. um byggingu nýrrar síldarverksmiðju í Örfirisey. Bygging verksmiðjunnar hófst árið 1948 og var að hluta fjármögnuð með Marshall aðstoð Bandaríkjanna eftir stríð og er nafn hússins því þaðan komið. Verksmiðjan var í  notkun í um hálfa öld en hefur staðið auð undanfarin ár.

Marshallhúsið

Í Marshallhúsinu verður umfangsmikil listastarfsemi. Á fyrstu hæð verður hins vegar veitingahús sem sérhæfir sig í sjávarfangi.

Þegar samþykkt var að undirritað um að heimila Reykjavíkurborg að gera samning við HB Granda um leigu á húsnæðinu til 15 ára og borgin mun framleigja fyrrnefndum aðilum, þá sagði Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í tilefni þess:

„Það er mikið fagnaðarefni að samstarf hafi tekist um öfluga menningarstarfsemi í Marshall húsinu. HB Grandi mun ráðast í endurgerð hússins af myndarbrag þannig að húsið verður sannkölluð borgarprýði. Reykjavíkurborg kemur að málinu með því að leigutryggja verkefnið. Það sem skiptir þó mestu máli er að náðst hefur samstarf við þrjá spennandi og kraftmikla samstarfsaðila á myndlistarsviðinu sem áttu ákveðið frumkvæði að verkefninu. Það mun tryggja að Marshall húsið verður eitt mest spennandi myndlistar- og menningarhús borgarinnar og þó víðar væri leitað“.

Nýlistasafnið eða Nýló, var stofnað árið 1978 af hópi 27 myndlistarmanna, en kjarni þeirra hafði áður starfað innan SÚM hópsins. Nýló er listamannarekið sýningarrými og safn, vettvangur uppákoma, umræðna og gjörninga. Nýló hefur lengi verið miðstöð nýrra strauma og tilrauna í íslenskri og erlendri myndlist og hafa margar sýningar í Nýló markað tímamót í íslenskri listasögu. Ár hvert stendur Nýló fyrir öflugri sýningadagskrá auk þess að safna og varðveita listaverk og heimildum sem tengjast frumkvöðlastarfi innan íslenskrar myndlistar.

Kling & Bang gallerí var stofnað af tíu myndlistarmönnum í byrjun árs 2003 og hefur allar götur síðan verið listamannarekið gallerí (non profit). Stefna Kling & Bang er að sýna myndlist sem ögrar samhengi og innihaldi skapandi hugsunar. Það hefur vakið heimsathygli fyrir starfsemi sína og sýningar. Kling & Bang hefur alla tíð lagt áherslu á að bjóða upp á vettvang fyrir framúrskarandi sýningar og tilraunamennsku, jafnt með sýningum upprennandi listamanna og vel þekktra, hérlendra sem erlendra.

Ólafur Elíasson er sá íslenski myndlistarmaður sem lengst hefur náð í listheiminum. Verk hans eru í eigu helstu listasafna heims og hafa sýningar hans gríðarlegt aðdráttarafl. Uppspretta hugmynda Ólafs er ósjaldan náttúra Íslands, og sú birta og litir sem hér er að finna. Ólafur er með vinnustofur í Berlín og Kaupmannahöfn, en hyggst nú líka vera með aðstöðu hér ásamt sýningarrými fyrir sérstök verk.

 

Marshallhúsið

Miklar framkvæmdir standa yfir í Marshallhúsinu

Vilhjálmur Vilhjálmsson forstjóri HB Granda segir þetta samstarf marka tímamót.

„Við í HB Granda erum mjög ánægð með þá uppbyggingu sem á sér stað í nærumhverfi okkar á Granda og það verður ánægjulegt að sjá líf færast í Marshall húsið á nýjan leik. Við hlökkum til að hefja þær miklu framkvæmdir sem framundan eru og munum gera okkar besta til að sníða innviði að því starfi sem þar mun fara fram. Það fer vel á því að starfsemi HB Granda í Reykjavík sé á milli listaverksins Þúfu eftir listakonuna Ólöfu Nordal sem HB Grandi reisti og fyrirhugaðrar listamiðstöðvar í húsnæði félagsins.“

 

Myndir af Marshallhúsinu: Smári / veitingageirinn.is

 

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Í dag starfar Smári hjá Tónaflóði heimasíðugerð. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið