Vertu memm

Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel

Nýtt veitingahús á Rauðarárstíg

Birting:

þann

Reykjavík Kitchen

Í ágúst s.l. opnaði nýr veitingastaður við Rauðarárstíg 10. Staðurinn heitir Reykjavík Kitchen og hefur meðal annars fengið mjög góða dóma á Tripadvisor.

Eigendur eru systkinin, Páll Þórir Rúnarsson, K. Fjóla Guðmundsdóttir, Ólafur Þór Guðmundsson.  Páll og Ólafur eiga einnig hlut í veitingastaðnum Old Iceland á Laugavegi 72, en sá staður hefur verið í topp 10 á Tripadvisor í 4 ár samfleytt í flokknum Local cuisine.

Reykjavík Kitchen

Reykjavík Kitchen

Andri Snær Kristinsson er matreiðslumaðurinn á bakvið Reykjavík Kitchen, en hann lauk sveinsprófinu árið 2017. Andri lærði fræðin sín á Argentínu og útskrifaðist frá Kopar. Andri hefur starfað á Herbúð 11, Salt kitchen & bar svo fátt eitt sé nefnt.

Lilja M. Bergmann sér um faglegan rekstur staðarins.

Reykjavík Kitchen leggur mikla áherslu á góða þjónustu og vera eingöngu með íslenskt hráefni og hefðbunda íslenska rétti, í bland við annað og þemað er mjög líkt því sem er á Old Iceland veitingastaðnum.

Reykjavík Kitchen

Þessi girnilegi réttur var fiskur dagsins í september.
Rauðspretta með kartöflusmælki, sætkartöflumauki, aspas, kúrbít, pecan hnetum og dill dressingu.

Reykjavík Kitchen tekur 42 manns í sæti og opnunartími er: 11:30 – 22:00 mán til föst og 17:00 – 22:00 laug og sun.

Heimasíða: www.reykjavikkitchen.is

Instagram: Reykjavík Kitchen

Facebook: Reykjavík Kitchen

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Í dag starfar Smári hjá Tónaflóði heimasíðugerð. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið