Vertu memm

Axel Þorsteinsson

Nýtt Bouchon Bakery opnar | Axel yfirbakari- og konditori: „Þetta er búið að vera ævintýri eftir ævintýri“

Birting:

þann

Bouchon Bakery

Axel Þorsteinsson og Gert Bredenhan við nýja bakaríið

Nú um helgina opnaði nýtt Bouchon Bakery í Marina verslunarmiðstöðinni í Kúveit með pomp og prakt.  Axel Þorsteinsson býr í Kúveit og starfar þar sem yfirbakari hjá Bouchon Bakery keðjunni sem að matreiðslumeistarinn Thomas Keller á og rekur.

Bouchon Bakery

Keiran Terry viðskiptastjóri, Axel Þorsteinsson yfirbakari- og konditori, Gert Bredenhan yfirkokkur og Rabih Habka rekstrarstjóri

Núna ertu búinn að opna þrjú bakarí þ.e. eitt í Dubai og tvö í Kúveit, er þetta ekki að verða leikur einn fyrir þig?

„Fyrstu tvö voru mjög erfið. Sérstaklega eins og hérna í mið Austurlöndum þar sem matvælaeftirlit er mjög strangt. En núna þegar við opnuðum seinna bakaríið í Kúveit þá var þetta aðeins auðveldara því við vissum hvað við þyrftum að tækla.“

, sagði Axel í samtali við veitingageirinn.is.  Bouchon Bakery sem hefur ávallt verið staðsett víða í Bandaríkjunum opnar í fyrsta sinn þetta víðfræga bakarí út fyrir landsteina Bandaríkjanna og það í Kúveit, Dubai og Qatar.  Fjórða Bouchon bakaríið mun opna í Qatar á næstu mánuðum.

Sjá einnig: Bouchon Bakery opnar í Kúveit | Axel yfirbakari: “Partýið er rétt að byrja..”

Hafa komið upp einhver vandræði í kringum opnunina á nýja bakaríinu?

„Að opna hérna úti hefur verið eintóm vandræði. Um daginn var indverji að hengja upp tússtöflu og skrúfaði í gegnum vegginn og náði að festa rennihurðina með skrúfunni.
Þetta er búið að vera ævintýri eftir ævintýri. Að útskýra araba eða hindi mælandi manneskju hvernig þú vilt hafa hlutina hefur verið áskorun út af fyrir sig. Stundum eins og klippt út úr grínmynd.

Um daginn þá var ég að útskýra fyrir tveimur að loftræstingin virkaði ekki.  Tíu mínútum seinna kem ég að þeim að laga vaskinn sem var ekkert að.“

, sagði Axel hress að lokum, en hann hefur unnið hörðum höndum við opnun á bakaríunum, þar sem hann hefur verið á staðnum að koma fólkinu inn í störfin og leggja línurnar.

 

Myndir: aðsendar

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Í dag starfar Smári hjá Tónaflóði heimasíðugerð. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið