Vertu memm

Viðtöl, örfréttir & frumraun

Nýtt áhugavert fyrirtæki á markaðinn – Issi: „Ég stofnaði þetta fyrirtæki í kringum Covid 19“

Birting:

þann

Jóhann Issi Hallgrímsson

Jóhann Issi Hallgrímsson

Nú á dögunum stofnaði framreiðslu-, og matreiðslumeistarinn Jóhann Issi Hallgrímsson nýtt fyrirtæki sem sérhæfir í færanlegum handþvottastöðvum.

Fyrirtækið heitir Vaska og býður upp á tvær gerðir af færanlegum handþvottastöðvum, sem eru:

Stærri stöðin kemur með:

Fjórum snúningshjólum með bremsum
Fjórum ryðfríum stálvöskum með snertilausri virkni
Fjórum hnéhnöppum fyrir vatn
Fjórum handþurrkuskömmturum
Fjórum sápuskömmturum
Tengi fyrir vatnsinntak og affall

Minni stöðin kemur með:

Fjórum snúningshjólum, tveimur með bremsum
Ryðfríum stálvaski með snertilausri virkni
Fótstigi fyrir vatn
20 lítra tanki fyrir hreint vatn
40 lítra tanki fyrir affallsvatn
Handþurrkuskammtara (tork)
Sápuskammtara
Hurð með lás

Hægt er að nálgast allar upplýsingar á vefslóðinni www.vaska.is.

„Það hafa margir haft samband með fyrirspurnir ofl. þá sérstaklega stofnanir. Einnig mun ég á næsta ári vera með útleigu á færanlegum einingum sem munu henta hverjum þeim sem vilja vera með kynningar t.d. í verslunum, eða hreinlega sölubás með möguleika að hita eða kæla.“

Sagði Jóhann Issi í samtali við veitingageirinn.is aðspurður um viðtökurnar.

Fyrsti veitingastaðurinn á Íslandi

Vaska - Færanlegar handþvottastöðvar

Magnús þórisson og Jóhann Issi Hallgrímsson í Réttinum í Reykjanesbæ

Í vikunni tók Magnús þórisson matreiðslumeistari og eigandi matsölustaðarins Réttarins í Reykjanesbæ, við tveimur stöðvum og var þar með fyrsti veitingastaðurinn á Íslandi til að taka í notkun færanlega handþvottastöð.

„Færanlegu handþvottastöðvarnar frá Vaska.is eru frábær lausn fyrir fyrirtæki sem þurfa að taka á móti mörgum gestum á stuttum tíma og þar sem fyllsta hreinlætis og sótthreinsunnar þarf að gæta að. Þetta kom gríðarlega vel út á fyrsta degi og viðskiptavinirnir ánægðir með þetta framtak.“

Sagði Magnús þórisson.

„Mér finnst glatað að þurfa fara á salerni á veitingastað bara til að þvo mér um hendurnar. Ég stofnaði þetta fyrirtæki í kringum Covid 19“.

Sagði Jóhann Issi að lokum.

Vaska - Færanlegar handþvottastöðvar

Færanlega þvottastöðin komin á Slökkvistöð höfuðborgarsvæðissins

Vaska - Færanlegar handþvottastöðvar

Vikar í Lífstíl er kominn með færanlega handþvottastöð í ræktina.

Vaska - Færanlegar handþvottastöðvar

Rakarastofan Herramenn býður sínum viðskiptavinum upp á færanlega þvottastöð.

Myndir: facebook / Vaska

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Í dag starfar Smári hjá Tónaflóði heimasíðugerð. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið