Vertu memm

Freisting

Nýr veitingastaður opnar

Birting:

þann

Nýr veitingastaður opnar formlega í dag og ber hann nafnið Sushi The Train og er staðsettur á annarri hæð í IÐU húsinu við Lækjargötu. Fréttaritari tók aðeins forskot á sæluna og kíkti á staðinn í gær (miðv. 7 des), en verið var að reynsluprufa staðinn.

Guðmundur Freyr "Beysi"Í eldhúsinu voru þeir Guðmundur Freyr „Beysi“ yfirkokkur og Ottó Magnússon matreiðslumaður. Það var létt yfir þeim og nóg að snúast. Fréttaritari settist við hliðiná eldhúsinu og spjallaði aðeins við félagana og fékk sér Nigiri með Shitake svepp, núðlusúpu með kjúkling og Soya mirin (sætt sake og soya soðið vel niður) og þvílík dásemd, léttir og fínir réttir. Margir réttir eru á færibandi sem rúllar hægt og rólega fyrir framan gestinn og er hver af öðrum mjög fallegir og snyrtilega settir upp. Viðskiptavinir panta rétti eftir litum diska og eru það allt frá 200-500 kr. Einstaklega skemmtilegur staður og mikið í hann lagt.

 

   

Eigendur Sushi The Train eru:
Kristján Þorsteinsson
Guðmundur Þór
Tyrfingur Tyrfingsson
Ottó Magnússon

En þeir eru einnig eigendur staðarins Humarhúsið. Þess ber að geta að Ottó Magnússon matreiðslumaður hefur nýlega keypt sér inn í fyrirtækið eða fyrir um 2 mánuðum síðan. Ottó hefur til margra ára starfað hjá Humarhúsinu.

 Ottó og Beysi  

Freisting.is óskar eigendum og starfsfólki til hamingju með nýja veitingstaðinn.

 

[email protected]

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Í dag starfar Smári hjá Tónaflóði heimasíðugerð. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Auglýsingapláss
Click to comment

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið