Vertu memm

Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel

Nýr sjávarréttastaður opnar í miðborg Reykjavíkur

Birting:

þann

Messinn - Veitingastaður

Starfsfólk Messans skálar fyrir frábærum opnunardegi

Þar sem veitingastaðurinn Veiðikofinn var áður til húsa við Lækjargötu er kominn nýr sjávarréttastaður sem ber nafnið Messinn.

Messinn opnaði formlega 21. júní síðastliðinn og hefur fengið afar jákvæðar undirtektir.

„Við ætlum að fanga andann á Tjöruhúsinu á Ísafirði og flytja hann hingað til Reykjavíkur. Ég og Maggi, eigandi Tjöruhússins, erum systkinabörn og ég kokkaði þar í dálítinn tíma. Hann hefur lagt blessun sína yfir staðinn og ætlar meira að segja að koma í heimsókn og elda fyrir okkur,“

segir Jón Mýrdal veitingamaður í samtali við Fréttatímann en Messinn er í anda Tjöruhússins á Ísafirði.

Messinn - Veitingastaður

„Getur maður loksins fengið fisk í Reykjavík sem er ekki léttsteiktur á báðum hliðum, með smá aspas og brokkólí, 3 gljáðum kartöflum og svo einhverja froðu með,“

skrifar einn gestur á facebook síðu Messans sem er greinilega mjög ánægður með þessa viðbót í veitingaflóru Reykjavíkur.

Á twitter má sjá fjölmarga gesti ánægða með veitingastaðinn:


Leikarinn frægi úr þáttunum Office Rainn Wilson var ánægður Messann

Messinn - Veitingastaður

Það var nóg um að vera á Messanum á 17. júní #Pre-opening
Mynd: smári / Veitingageirinn.is

Snorri Sigfinnsson er yfirmatreiðslumaður Messans, en hann hefur áður starfað hjá Argentínu Steikhúsi, Center Hótelinu Arnarhvoll svo fátt eitt sé nefnt.

Messinn - Veitingastaður

Matseðillinn er skemmtilegur og ferskur að sjá og þar er ekki mikið um flækjustig, þrír forréttir, saltfiskmús, graflax og humarsúpu og fínt verð eða frá 1.650 til 1.850 krónur.  Aðalréttir þar sem fiskipönnurnar leika aðalhlutverkið, s.s. plokkfisk, gellur, bleikja, einfalt og girnilegt að sjá.  Kjötréttir eru ekki í boði, en hey, þetta er nú sjávarréttarstaður.

Fjórir eftirréttir er á matseðlinum sem heita Berjabrjálæði sem er vegan réttur, döðlukaka, súkkulaðikaka og hvítsúkkulaði skyrmús.

Spennandi matseðill sem er allt í senn, góður fyrir budduna.

 

Myndir: facebook / Messinn Reykjavík

 

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Í dag starfar Smári hjá Tónaflóði heimasíðugerð. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið