Vertu memm

Starfsmannavelta

Nýir rekstraraðilar taka við Þrastalundi

Birting:

þann

Þrastalundur

Þrastalundur

Þrastalundur hefur nú opnað að nýju eftir eigendaskipti og nokkrar breytingar hafa verið gerðar.

Nýr matseðill er í boði þar sem hægt er að velja um nokkra forrétti, súpur og einnig hamborgara, samlokur, steiktan fiskrétt, BBQ rif, pasta, kjúklingabringur og eftirréttir svo fátt eitt sé nefnt.

Yfirkokkur staðarins er Celio Sosa, en hann er jafnframt eigandi ásamt Birni Baldurssyni.

Þeir félagar hafa séð um rekstur á veitingastaðnum Surf and Turf á Selfossi undanfarin ár, sem er nú til sölu á sérstöku tilboði eða eins og fram kemur í smáauglýsingunum hér á veitingageirinn.is:

„Veitingastaður við þjóðveg 1 á Selfossi. Staðurinn tekur 40 manns í sæti og er vel tækjum búinn. Góður sólpallur bak við sem tekur 40 manns. Búinn að vera í rekstri síðan 2013 sem slíkur, en áður var í húsinu Hrói Höttur á 18 ár.

Afar góður leigusali og leigan um 340.000 kr. á mánuði.  Hefur verið með fína ársveltu og gott gengi undanfarin ár.

Eigandi kominn í annað og mjög krefjandi starf og hefur lækkað söluverðið úr 20 milljónum í 12 milljónir af þessum sökum.“

Á Þrastarlundi hefur verið í boði eldbakaðar pizzur en er ekki lengur í boði.

Lækkað verð í kaffiteríunni og versluninni

Í kaffiteríunni er ýmislegt á boðstólnum svo sem pylsur, allar tegundir af kaffi og heitt súkkulaði.  Bakkelsi, vöfflur með rjóma, heitar samlokur ásamt súpu með heitu brauði.

Verslunin er í mótun hjá eigendum, en markmiðið er að bjóða upp á flest sem gott er að grípa með sér á leiðinni í bústaðinn eða heim. Gas, tóbak, fatnaður, nauðsynjavörur og ýmislegt fleira.

Eigendur hafa lækkað verð á flest öllum vörum.

Mynd: facebook / Þrastalundur

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Í dag starfar Smári hjá Tónaflóði heimasíðugerð. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið