Vertu memm

Keppni

Ný stjórn Barþjónaklúbbsins tekin til starfa – Sævar Helgi hreppti titilinn: Hraðasti barþjónninn 2018

Birting:

þann

Barþjónaklúbbur Íslands - Hraðasti barþjónninn 2018

F.v. Tómas Kristjánsson, Friðbjörn Pálsson og hraðasti barþjónn landsins Sævar Helgi Örnólfsson

Á dögunum fór fram aðalfundur Barþjónaklúbbsins og í beinu framhaldi var haldin keppnin Hraðasti barþjónn Íslands í samstarfi við Mekka Wines & Spirits.

Á aðalfundinum var flott og uppbyggileg umræða um starf félagsins og óhætt að segja að áhuginn við að halda áfram að byggja það góða starf hefur sjaldan verið eins mikill enda fengu færri pláss í stjórninni en vildu.

Barþjónaklúbbur Íslands - Hraðasti barþjónninn 2018

Ný stjórn Barþjónaklúbbsins tekin til starfa

Var mikill vinskapur hjá öllum sem buðu sig fram en ný andlit komu inn í stjórnina sem öll eru með nýjar og skemmtilegar hugmyndir í takt við þau gildi sem klúbburinn stendur fyrir.

Ný stjórn klúbbsins er eftirfarandi:

  • Tómas Kristjánsson, Nauthóll. Forseti kosinn í fyrra til 2 ára
  • Andri Davíð, Wow og Viceman Varaforseti kosinn í fyrra til 2 ára
  • Orri Páll Vilhjálmsson, Apótek. Kosinn í fyrra til 2 ára
  • Elna María Tómasdóttir, Nauthóll. Kosinn í fyrra til 2 ára
  • Grétar Matthíasson Grillmarkaðnum. Kosinn til 2 ára
  • Ivan Svanur, Miami. Kosinn til 2 ára
  • Þórhildur Kristín Láríntúnusardóttir, Tapas kosinn til 1 árs.
  • Teitur Ridderman Schiöth, Pablo Kosinn til 2 ára
  • Sævar Helgi Örnólfsson, Sushi Social. Kosinn til 2 ára
  • Alana Hudkins, Slippbarinn. Kosinn til 1 árs.

Í beinu framhaldi var skellt í létta og skemmtilega keppni um hraðasta barþjóninn í samstarfi við Mekka Wines & Spirits.

Reglurnar voru frekar einfaldar, en 4 fljótustu barþjónarnir að afgreiða 3 Peroni í glasi, hrista 2 Finlandia Espresso Martini og hella í 4 Fernet Branca staup kæmust í úrslit.

Refsistig voru gefin ef eitthvað gleymdist eða vinnubrögðin væru ekki eins og á góðu keyrslukvöldi á eðlilegum bar. Keppnisskapið var mismunandi mikið en að sjálfsögðu allt gert á líflegu nótunum.

Barþjónaklúbbur Íslands - Hraðasti barþjónninn 2018

Sævar Helgi fagnaði sigrinum vel og innilega

Hátt í 30 barþjónar kepptu um kvöldið og komust 4 í úrslit, sem voru þau Tóta á Tapas barnum, Sævar Helgi á Sushi Social, Ingólfur og Júlía á Sæta svíninu sem kepptu í útsláttarkeppni þangað til Sævar Helgi Örnólfsson frá Sushi Social stóð uppi sem Hraðasti barþjónninn 2018.

Barþjónaklúbbur Íslands - Hraðasti barþjónninn 2018

Bransa Kariokee var ansi líflegt

Að lokum var skellt í létt bransa Kariokee sem var ansi líflegt.

Barþjónaklúbburinn sá um dómgæslu, Ivan Svanur frá Barþjónaklúbbnum var kynnir og svo Heiðar Austmann var DJ og Karaoke stjóri.

En eins og myndirnar sýna þá var mikið fjör og mismunandi aðferðir sem þessi skemmtilegi flotti hópur tók fyrir hendi í keppninni.

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið