Vertu memm

Viðtöl, örfréttir & frumraun

Notar tækifærið í Covid-19 ástandinu og tekur veitingastaðinn í gegn

Birting:

þann

Höfnin

Höfnin er fjölskyldurekinn veitingastaður sem Brynjar og Elsa settu upp árið 2010. Sérstaklega var hugað að því að viðhalda tíðaranda og „sál“ hússins sem er mikil en sægrænu húsin við Suðurbugtina eru byggð á árunum kringum 1930 og þjónuðu gömlu höfnina í Reykjavík sem beitningaskúrar og netageymslur fram yfir aldamótin síðustu.

„Æ það þýðir ekkert að væla, getum ekkert gert nema kannski að taka til hjá okkur og fínpússa“

sagði Brynjar Eymundsson matreiðslumeistari á Höfninni í samtali við veitingageirinn.is.

Veitingahjónin Brynjar Eymundsson og Elsa Guðmundsdóttir eru að gera staðinn sem nýjan þessa daga og sjá tækifærin í hillingum þó lokað sé og sumarið ekkert sérlega vel útlítandi. Bjartsýnin og brjálæðið, bestu vopnin, segja þau.

Veitingahjónin Brynjar Eymundsson og Elsa Guðmundsdóttir - Höfnin

Hjónin dansa í gegnum þetta

Höfnin er 10 ára um þessar mundir og sagði Brynjar að það hafi svo sem ekki verið gæfulegt ástandið 10. apríl 2010 þegar þau fengu afhentan þennan ”slorkofa” gluggalausan án rafmagns og hita en af stað var farið og allt teiknað eftir á, tók aðeins 5 vikur að klára, akkúrat meðan Eyjafjallajökull gaus.  Reyndar þurftu þau að bíða óþolinmóð í 2 vikur til að mega opna 28. maí, skrítnir tímar þá eins og nú þó alvarlegri séu á heimsvísu.

„Vorum búin að kortleggja lagfæringar innanhúss fyrir þessi ósköp og ákváðum svo að kýla á þær með engum fyrirvara þegar allt stoppaði og njótum þar velvildar og ótrúlegrar hjálpsemi af hálfu fagmanna þar sem þeir eru og ekki síst okkar frábæra starfsfólks sem virðir af bestu getu fjarlægðarmörkin og koma eitt til tvö í einu og pússa stóla og lakka, mála veggi og annast stórþrif í skertu starfshlutfalli, aðgerð stjórnvalda sem hjálpar mikið við þessar aðstæður.

Samhliða þessu erum við líka að sinna heimsendingum á nokkrum af okkar vönduðu og klassísku réttum því við erum með aðstöðu á tveim stöðum og hægt um vik að skipta okkur. Tökum einn dag í einu og sjáum til hvort við byrjum að opna kannski hádegin eftir páska með þeim takmörkunum sem í gildi eru en við eigum mikið af fastakúnnum á þeim tíma, annars bara allt á fullt þegar við megum, hlýðum og bíðum.

Við ætlum að standa í lappirnar að þessu loknu segja þau hjón Elsa og Brynjar á Höfninni.

Höfnin heimsending

Myndir: aðsendar

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið