Vertu memm

Viðtöl, örfréttir & frumraun

Nomy í samstarf við Norræna húsið

Birting:

þann

Nomy strákarnir

Ein öflugasta kokkasveit landsins.
F.v. Fannar Vernharðsson, Jóhannes Steinn Jóhannesson og Bjarni Siguróli Jakobsson

Strákarnir á Nomy eru búnir að taka yfir og sjá um veisluþjónustuna í Norræna húsinu.

Sjá einnig: AALTO Bistro kveður Norræna húsið

Villibráðaveisla

Nomy veisluþjónusta

Villibráðakvöld.
Þar sem í boði verður rjóminn af því sem íslensk náttúra hefur upp á að bjóða.

Í október og nóvember munu þeir bjóða upp á villibráðakvöld þar sem í boði verður rjóminn af því sem íslensk náttúra hefur upp á að bjóða.

Boðið verður upp á glæsilegan 15 rétta villibráðasmakkseðill, sem hægt er að skoða með því að smella hér.

Jóladagskrá

Nomy veisluþjónusta

Á boðstólnum í Norræna húsinu verður jólahlaðborð, jólahádegi og jólasmàrétti.

Í nóvember og desember verður sérstök jóladagskrá. Á jólunum er tilveran tekin upp á næsta stig. Fötin flottari, greiðslurnar glæstari og maturinn mikilfenglegri. það er kjörið að koma á Nomy og eiga notalega stund og leyfa bragðlaukunum að njóta sín.

Á boðstólnum í Norræna húsinu verður jólahlaðborð, jólahádegi og jólasmàrétti. Nánari upplýsingar má skoða hér.

Það eru klárlega spennandi tímar framundan hjá Nomy.

Sjá einnig: Ein öflugasta kokkasveit landsins opnar veisluþjónustu

Um Nomy – Vertu algjör spaði og græjaðu veisluna með aðstoð Nomy

Eigendur Nomy eru Bjarni Siguróli Jakobsson, Fannar Vernharðsson og Jóhannes Steinn Jóhannesson matreiðslumeistarar, en þeir hafa yfirgripsmikla reynslu á matreiðslusviðinu þegar kemur að veislum og einkamatreiðslu fyrir allskonar viðburði enda hafa þeir eldað frá litlum VIP einkadinnerum og uppí mörg hundruð manna árshátíðir o.fl.

Hjá Nomy er lögð áhersla á baráttunni við loftslagsbreytingar og eru allar vörur afgreiddar á sérstökum Nomy viðarplöttum sem eru lánaðir til viðskiptavini gegn tryggingu sem er innifalin í verði, en viðskiptavinir fá endurgreidda þegar þeir skila aftur til veisluþjónustunnar.

Vertu algjör spaði og græjaðu veisluna með aðstoð Nomy
Ein þjónusta hjá Nomy hefur heldur betur slegið í gegn, en þar sjá Nomy strákarnir um allan undirbúning og viðskiptainurinn fær svo veisluna tilbúna, til að klára heima í ofninum. Sjá nánar hér.

Myndir: nomy.is

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið