Vertu memm

Keppni

Nemakeppni í matreiðslu og framreiðslu – forkeppni fyrir Norrænu nemakeppnina

Birting:

þann

Seljalandsfoss

Íslandsmót matreiðslu- og framreiðslunema, haldin þriðjudaginn 12. nóvember 2019.

Umsókn:

Nafn:________________________________________________________________

Kennitala:_________________________Iðngrein:____________________________

Vinnustaður:________________________________________Símanúmer:_________

Netfang:___________________________________________

Meistari:____________________________________________

Skila þarf umsókn til Matvæla- og veitingasviðs IÐUNNAR Vatnagörðum 20. Netfang: [email protected]. Umsóknarfrestur er til 8. nóvember 2019. Keppnin fer fram þriðjudaginn 12. nóvember nk. og hefst kl. 14.

Keppnin í matreiðslu skiptist í tvo hluta, skriflegt próf og verklegan hluta þar sem verkefnið er að matreiða tvo rétti; forrétt og eftirrétt.

Keppnin í framreiðslu skiptist í:
a) skriflegt próf
b) blöndun drykkja – tveir drykkir
c) kvöldverðaruppdekkning  ásamt blómum, fjórir réttir fyrir tvo gesti
d) eldsteiking
e) fjögur sérvettubrot

Ekki er ætlast til að að keppendur hafi aðgang að hjálpargögnum við úrlausn verkefnisins.

Tveir stigahæstu einstaklingarnir í matreiðslu og framreiðslu munu taka þátt í Norrænu nemakeppninni sem verður haldin í Osló dagana 24. og 25. apríl 2020.

Keppnisréttur er bundinn við aldur. Keppendur mega ekki vera eldri en 23 ára þann 1. maí 2020 og skilyrt er að nemar séu á námssamningi í maí 2020.

Mynd: úr safni

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Í dag starfar Smári hjá Tónaflóði heimasíðugerð. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið