Vertu memm

Markaðurinn

Negroni vikan verður haldin um allan heim 13. – 19. september

Birting:

þann

Negroni vikan verður haldin um allan heim 13. - 19. september

Negroni vikan verður haldin um allan heim 13.-19.september þar sem við lyftum glösum, skálum í Negroni og söfnum fyrir góðum málstað.

Negroni vikan hefur verið haldin síðan árið 2013 á vegum Imbibe þar sem 120 barir tóku fyrst þátt, yfir í 12.000 bari um allan heim í dag og hefur Negroni vikan safnað nær 3 milljónum dollara til góðgerðarmála! Þessa viku í september ætla barir og veitingastaðir heimsins að blanda klassískan Negroni ásamt tilbrigðum fyrir góðan málstað.

Í ár hafa veitingamenn og barþjónar tækifæri á að taka þátt í Negroni vikunni og sýna málefnum stuðning, einfaldlega fylgja þessum leiðbeiningum:

Skráning fer fram á www.negroniweek.com
Veldu málefni af listanum til að styrkja 0-25$
Veldu upphæð sem þú vilt leggja til málefnisins við skráningu á Negroni vikunni 2021

Á Íslandi mun hluti Campari sölu á þátttökustöðum renna til málefnisins “Römpum upp Reykjavík”.

100 rampar á einu ári til að bæta aðgengi hreyfihamlaðra að þjónustu, verslun og veitingahúsum í miðborg Reykjavíkur.

Negroni vikan verður haldin um allan heim 13. - 19. september

Hugmyndaflug barþjóna

Negroni vikan hvetur barþjóna til að þróa sinn eiginn Negroni, birta mynd og tagga @campariofficial, @campari.is og @mapledrinks en mest spennandi tilbrigði við hinn klassíska Negroni mun birtast á alþjóðlegum síðum Campari og sá barþjónn fær veglegan vinning að auki hér heima. Sniðmát má nálgast hjá Sóley [email protected] eða söluteymi Ölgerðarinnar.

Hér eru myllumerkin: #NegroniWeek, #Campari, #RedPassion, #Negroni

Sniðmát fyrir barþjóna til að taka þátt:

Negroni vikan verður haldin um allan heim 13. - 19. september

Almenn umfjöllun, víndómar og viðtöl, blandað ýmsum fróðleik um Ísland, mat, drykki og fleira því tengt.

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið