Vertu memm

Markaðurinn

Mjólkursamsalan bætir merkingar á mjólkurfernum til að minnka matarsóun

Birting:

þann

Mjólkursamsalan bætir merkingar á mjólkurfernum til að minnka matarsóun

Mjólkursamsalan hefur tekið mörg skref í umhverfismálum á undanförnum árum og einbeitir sér m.a. að minnkun á matarsóun. MS merkir nú mjólkurfernurnar Best fyrir – oft góð lengur til þess að hvetja til minni matarsóunar.

Merkingin „Best fyrir“ merkir í raun lágmarksgeymsluþol matvæla og gefa þessar merkingar frekar til kynna gæði en öryggi matvæla. Matvörur sem eru merktar með „best fyrir“ eru oft í lagi eftir þá dagsetningu svo lengi sem lykt og bragð er í lagi og ef varan hefur verið geymd rétt.

Sambærilegar merkingar hafa gefið góða raun í nágrannalöndum okkar, m.a. í Noregi þar sem þær hafa mælst mjög vel fyrir.

MS hvetur neytendur til að draga úr matarsóun og bendir á heimasíðu Umhverfisstofnunar þar sem mikið er af leiðbeiningum og hugmyndum fyrir neytendur matarsoun.is.  Á síðunni kemur m.a. fram munurinn á geymsluþolsmerkingunum „best fyrir“ og „síðasti notkunardagur“ og þar eru neytendur hvattir til að nota nefið til að meta hvort varan sé í lagi eftir best fyrir dagsetninguna.

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið