Vertu memm

Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel

Mímir er nýr og líflegur veitingastaður

Birting:

þann

Mímir - Veitingastaður á Hótel Sögu

Undanfarna mánuði hefur mikið gengið á á Hótel Sögu, en öll fyrsta hæðin hefur verið færð í nýjan búning.  Í allri endurnýjun hefur verið hugað að því að Sagan fái að njóta sín, bæði í fortíð og nútíð.

Mímisbar er á sama stað í nýjum búningi, með 10 bjóra á dælu, úrval kokteila og forláta vínskápi sem geymir fjölda víntegunda frá vínbændum víðsvegar að.

Mímir er nýr og líflegur veitingastaður sem býður upp á framandi bragðsamsetningar í mat og drykk. Mímir er opinn fyrir hádegisverð og kvöldverð alla daga.

Hráefnið er beint frá bændum þar sem því er komið við, eða það besta fáanlega úr sjó og landi.

Denis Grbic og Snædís Xyza Jónsdóttir Ocampo.

Denis Grbic og Snædís Xyza Jónsdóttir Ocampo.
Mynd af Denis Grbic: kokkalandslidid.is
Mynd af Snædísi: facebook / Kokkalandsliðið

Þeir matreiðslumenn sem halda um stjórnvölinn á Mímir eru Denis Grbic Kokkur ársins 2016 og yfirkokkur staðarins og Snædís Xyza Jónsdóttir Ocampo er vaktstjóri, en þau eru bæði meðlimir í Kokkalandsliðinu.

Á matseðlinum má sjá á frumlegan hátt ýmsar útfærslur af réttum og framsetningu, t.d. sleðaferð sem er andalifur, reykt bleikja, grísasíða og rauð epli.

Í aðalréttum er klassíska Nauta rib eye með laukgljáa og vatnakarsi, þorskur svo fátt eitt sé nefnt.

Grænmeti fær gott hlutverk á matseðlinum og eins er hægt að panta rétti til að deila.

Girnilegur götumatur (street food) er á matseðlinum, Bóndalokan fræga sem er skonsa og gæsakonfit, stökkir kjúklingaleggir og rauðrófusalatið.

Að lokum er val á milli þriggja eftirrétta.

Opnunartími í hádeginu er frá 12.00 til 14.00. Á kvöldin frá klukkan 18.00 til 22.00. Mímisbarinn er opinn allan daginn eða frá klukkan 12.00 til miðnættis.

Þann 1. desember byrjar svo flottur jóladögurður sem verður alla laugardaga og sunnudaga út desember og að auki fá börn á aldrinum 6 ára og yngri að borða frítt.

Allar nánari upplýsingar má lesa á heimasíðu Mími og á samfélagsmiðlum:

Heimasíða

Facebook

Instagram

https://www.instagram.com/p/BqcKKiqB9jV/

 

Myndir: Aðsendar / Mímir

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Í dag starfar Smári hjá Tónaflóði heimasíðugerð. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið