Vertu memm

Frétt

Matseðill Fiskidagsins Mikla 2019 er klár og afar áhugaverður

Birting:

þann

Fiskidagurinn mikli

Friðrik V. er yfirkokkur hátíðarinnar og lagði línurnar að góðum matseðli ásamt sínu fólki.

Gellur, plokkfiskur, ostafylltar fiskibollur, Indverskt og Egils Appelsín

Matseðill Fiskidagsins 2019 er áhugaverður að vanda, Friðrik V. er yfirkokkur og  lagði línurnar að góðum matseðli ásamt sínu fólki. Þar má að sjálfsögðu finna gamla og góða rétti, t.a.m. síld og rúgbrauð, filsurnar sem eru fiskipylsur í brauði, harðfisk og íslenskt smjör, fersku rækjurnar og fiskborgarana þar sem að öflug grillsveit grillar en líkt og á síðasta ári sameinast árgangur 1966 sem hefur staðið vaktina í mörg ár árgangi 1965.

Fjölskylduhátíðin Fiskidagurinn mikli er haldin hátíðleg í Dalvíkurbyggð helgina eftir verslunarmannahelgi 8. – 11. ágúst 2019.

Allir drykkir á hátíðinni eru í boði  Egils Appelsín.  Sushi Corner á Akureyri mætir aftur á hátíðina eftir að hafa slegið í gegn í fyrra. Fiskurinn á grillunum er með nýju sniði, bleikja í Pang Gang sósu og þorskur í karamellu og mangósósu.

Á bás Friðrik V. verður í boði líkt og á síðasta ári Hríseyjarhvannargrafin bleikja og nýjung á þessum bás verða steiktar gellur. Akureyri FISH og Reykjavík FISH  koma með Fish and chips, það verður sérbás með Indversku rækjusalati í boði Dögunar.

NINGS fjölskyldan mætir með risasúpupottinn þar sem að boðið verður uppá austurlenska rækju og bleikjusúpu,  Aðstoðarkokkur Fiskidagsins mikla er Addi Yellow sem stýrir sasimistöðinni þar sem að langreyður frá Hval h.f og bleikja verða í boði, að því er fram kemur í tilkynningu frá Fiskideginum Mikla..

Fiskidagurinn mikli

Grímur Kokkur mætir sjóðandi heitur eftir árshlé með plokkfiskinn góða og ostafylltar fiskibollur, það sama er uppá teningnum hjá Moorthy og fjölsyldu í Indian Curry House á Akureyri þau mæta til baka eftir árshlé með Taandoori bleikju og Naan brauð. Kaffibrennslan býður uppá besta kaffið eða svartan Rúbín, Íspinnarnir frá Samhentum Umbúðamiðlun vinum Fiskidagsins mikla númer 1. klikka aldrei, Samherji býður uppá sælgæti og merki dagsins.

Matseðillinn í tölum

  • Tölulegar staðreyndur um matseðilinn á Fiskidaginn mikla:
  • 1200 lítra súpupottur
  • um 10 tonn af fiski
  • 8000 lítrar af drykkjum
  • 50.000 servíettur
  • 300 sjálfboðaliðar
  • 8 metra langt grill með 20 brennurum
  • pizzan sem er annaðhvert ár 120 “ hver pizza og sett inn í ofn með gaffallyftara í hverri pizzu eru 640 sneiðar og milli kl 11 og 17 er bakað tæplega 20 stk.
  • Yfir daginn eru þetta á milli 130.000 matarskammtar.

Matseðill Fiskidagsins mikla 2019

Yfirkokkur: Friðrik V. Aðstoðarkokkar: Arnþór Sigurðsson og Arnrún Magnúsdóttir

Allir drykkir eru í boði Egils Appelsín.

Allt meðlæti: Olíur, kryddlögur, krydd, sósur (Felix) og grænmeti er í boði Ásbjörns Ólafssonar.

Allur fiskur í boði Samherja nema að annað sé tekið fram.
Allur flutningur í boði Samskipa.
Gas á grillin í boði Olís.

Á grillstöðvum Fjörfisks, Marúlfs, Reynis, Hrings og Hamars.
Fersk bleikja í Asískri Pang Gang sósu.

Ferskur þorskur í karamellu og mangó marineringu.
Brauðbollur og drykkir

Langgrillið: 8 metra gasgrill. ´65 og ´66 árgangarnir grilla.
Fiskborgarar í brauði með  Felix hvítlaukssósu.

Rækjusalatsstöð. Foreldrar og börn í yngri flokkum knattspyrnudeildarinnar
Indverskt rækjusalat. Dögun.

Sasimistöð – Sasimistjórar Addi Jelló og Ingvar Páll.
Langreyður frá Hval h.f. og bleikja.

Rækjustöð: Linda og Magga. Einu rækjudrottningar Íslandssögunnar.
Nýveiddar rækjur í skelinni og sojasósa.

NINGS stöð: Stærsti súpupottur Íslands. Bjarni á Völlum, ættingjar og vinir.
Bleikju og rækjusúpa með austurlensku ívafi.

Sushistöð. Sushi Corner  gengið frá Akureyri. Sushi eins og það gerist best.

Grímsstöð. Grímur kokkur ásamt fjölskyldu og vinum.
Plokkfiskurinn góði og ostafylltar fiskibollur.

Moorthy og fjölskylda í Indian Curry House á Akureyri
Bleikja Taandoori og Naan brauð

Friðrik V. Stöð  – Hrísiðn
Steiktar léttsaltaðar gellur
Hríseyjarhvannargrafin bleikja, með graflaxsósu og ristuðu brauði

Fish and chips stöð. Akureyri Fish og Reykjavík Fish.
Fish and chips.

Filsustöð  – Skíðafélag Dalvíkur grillar Filsur.
Filsur með völdum sósum í filsubrauði. Kjarnafæði

Harðfisksstöð:  Salka Fiskmiðlun.
Harðfiskur og íslenskt smjör

Síldar- og rúgbrauðstöð.
Síld og heimabakað rúgbrauð með smjöri. Samherji og bestu rúgbrauðsbakarar landsins.

Kaffistöð: Kaffibrennslan á Akureyri.
Rúbín kaffi – Besta kaffið.

Íspinnastöð: Samhentir, vinir Fiskidagsins mikla númer 1 gefa íspinna.

Samhentir umbúðamiðlun hafa verið með okkur frá upphafi.

Heimasíða: www.fiskidagurinnmikli.is

Myndir: Bjarni Eiríksson

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið