Vertu memm

Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel

Mathöll opnar í miðbæ Reykjavíkur

Birting:

þann

Reykjavík Restaurant

Miklar framkvæmdir eru í gangi við Vesturgötu 2a þar sem Restaurant Reykjavík var áður til húsa.

Þar mun rísa Mathöll Reykjavík í 1.800 fermetra húsnæði á þremur hæðum, 8 básar á fyrstu hæðinni og 6 básar annarri hæð hússins og á þriðju hæð verður starfsmannaaðstaða og skrifstofur.

Einnig á þriðju hæð verður veislusalur og bar sem leigt er út fyrir einkasamkvæmi. Hægt verður að fá veitingar sendar upp og gestir geta leigt bjórkút fyrir veisluna svo fátt eitt sé nefnt.

Verið er að taka húsið í gegn bæði að utan sem og að innan og munu framkvæmdir verða klárar í febrúar, en stefnt er á að opna í fyrsta lagi mars eða í síðasta lagi fyrir páska 2022.

„Eftirspurn er búinn að vera flott í pláss í básana og erum við búnir að ganga frá einhverjum nú þegar.

Ég lít á þetta project sem stökkpall fyrir nýja aðila sem eru með nýjar og spennandi hugmyndir og vilja koma sér á framfæri.“

Sagði Árni Traustason Sölu og markaðsstjóri Mathallarinnar í samtali við veitingageirinn.is, en hann á jafnframt hlut í fyrirtækinu. Fyrir áhugasama er hægt að hafa samband við Árna á netfangið: [email protected].

Verið er að byggja svalir utan á húsið sem er nýjung og mun koma sér vel í kvöldsólinni í portinu bakvið húsið.

Mynd: facebook / Reykjavík Restaurant

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Í dag starfar Smári hjá Tónaflóði heimasíðugerð. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið