Vertu memm

Uppskriftir

Lúxus Laxabollur

Birting:

þann

Lax

Skerið allan fisk í litla bita og marinerið í hvítlauk og kryddi í klukkustund.

200 gr laxaflak – hreinsað
150 gr hvítur fiskur
1 msk soyasósa
1 tsk saxaður hvítlaukur
2 egg
4 msk hveiti
100 ml hvítvín eða mysa
1 tsk dill
1 tsk fennelduft
1 tsk karrý
1 tsk paprikuduft
½ tsk timian
100 ml rjómi
Salt og pipar úr kvörn

Skerið allan fisk í litla bita og marinerið í hvítlauk og kryddi í klukkustund.  Hellið hvítvíni, eggjum saman við og blandið saman.  Setjið í matvinnsluvél og látið snúast í stutta stund.  Bætið hveiti saman við og hellið rjóma í smátt og smátt.  Mótið í litlar fallegar bollur með skeið og steikið í smjöri við vægan hita.

Framreiðið með skelfisksósu, brauði og hrísgrjónum.

Höfundur: Auðunn Sólberg Valsson matreiðslumeistari

Mynd: úr safni

Uppskriftirnar á veitingageirinn.is eru frá fagmönnum og áhugafólki á matargerð sem skilar fjölbreyttar og bragðgóðar uppskriftir til þín. Ef þú lumar á uppskrift sem þú vilt birta á veitingageirinn.is sendu okkur þá uppskriftina ásamt nafni á [email protected]

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið