Vertu memm

Freisting

Lífshlaup Völundar Snæs, matreiðslumanns

Birting:

þann


Völundur Snær Völundarson hefur glóðað villibráð yfir fljótandi hraunelfum úr gjósandi eldfjöllum, gufusoðið atlantshafslax í bullandi hverum og unnið á nokkrum þeim veitingastöðum, sem rómaðastir eru í Evrópu og Norður-Ameríku.

Meistarakokkurinn Völundur Snær Völundarson fæddist norður í Aðaldal í Suður-Þingeyjarsýslu 21. september 1973. Hann sleit barnskónum og eyddi unglingsárunum í sveitinni á bökkum Laxár, einnar þekktustu  laxveiðiár á Íslandi. Á heimaslóðum naut hann þeirra dásemda, sem felast í ferskum hráefnum til matargerðar, jafnt af landi, úr ám og hafi, en ekki síst hinna síbreytilegu árstíða, sem ganga yfir gróður, menn og skepnur á Íslandi.

Völundur Snær hóf fagferil sinn sem matreiðslumaður árið 1991 við Perluna í Reykjavík. Þar starfaði hann með Sturlu Birgissyni (Matreiðslumeistara Íslands 1995-1996 og í fimmta sæti í Bocuse D’Or 1999) og Gísla Thoroddsen (Club Chef de Chef). Með störfum í Perlunni, þar sem hann vann til 1996, var Völundur Snær við nám í Hótel og veitingaskóla Íslands, en þaðan lauk hann prófi árið 1995. Með matreiðslumeisturunum Sturlu Birgissyni og Gísla Thorodddsen matreiddi hann fyrir nokkrar einkaveislur og opinber matarboð á vegum Vigdísi Finnbogadóttur, þáverandi forseta Íslands.

Haustið 1996 fór Völundur Snær í austurveg og gerðist lærlingur (stagiaire) við veitingastaðinn „Domaine de Clairefontaine“ sem rekinn er af matreiðslumeistaranum Philippe Girardon (Meilleurs Ouvrier de France 1997). Árið 1997, eftir veruna á „Domaine de Clairefontaine“, leitaði Völundur Snær enn á vit ævintýra og nýrrar reynslu og lagði nú leið sína vestur um haf til Bandaríkja Norður-Ameríku, þar sem hann réðist sem matreiðslumaður við The Colombia Gorge Hotel í Hood River í Oregonfylki. Að verunni við The Colombia Gorge Hótelið lokinni árið 1998 leitaði hugur Völundar Snæs aftur heim á klakann, þar sem hann bætti enn við reynslu sína og færni með nokkurra mánaða störfum við “Mosfellsbakarí” hjá Hafliða Ragnarssyni (íslandsmeistara í sætabrauðsgerð árin 1995, 1998 og 2002).

Enn taldi Völundur Snær, að hann gæti bætt við sig þekkingu og reynslu, svo að í  maí 1998 hóf hann störf við hinn rómaða veitingastað Charlies Trotters í Chicago, en hann hefur hlotið mikið lof fjölda viðurkenndra aðila bæði í Bandaríkjunum og utan þeirra. Nefna má til dæmis: Relais & Chateaux: Relais Gourmand, Mobil Travel Guide: Five Stars og AAA: Five Diamonds. Árið 2000 fékk veitingastaður Charlies Trotters hæstu verðlaun tímaritsins ”Wine Spectator”, sem gaf honum þá umsögn, að hann væri besti veitingastaðurinn í Bandaríkjum Norður-Ameríku.

Fyrstu tvo mánuðina hjá Charlie Trotter vann Völundur Snær sem aðstoð í eldhúsi, (Commis Chef), en síðan sem vinnustöðvarstjóri (Chef de partie). Á meðan á dvöl hans stóð við veitingastað Charlies Trotters, hafði hann tækifæri til þess að vinna með matreiðslumeistaranum Marc Veyrat, sem kom sem gestur að veitingastaðnum, og að fimm hundruð gesta fjáröflunarveislu, sem haldin var í Chicago fyrir Bandarísku krabbameinssamtökin og að komu auk matreiðslumeistarans Charlie Trotter, meistararnir Jean-Louis Palladin, Alice Walters, Emiril Lagasse, Gray Kunz og Nancy Silverton. Í matreiðslu sinni er Völundur Snær innblásinn af þeim ströngu gæðakröfum og þeirri afburða matreiðslu, sem hann kynntist og tileinkaði sér undir handleiðslu Charlies Trotters. Vera hans við veitingastað meistarans er án efa sú reynsla, sem gefið hefur honum drýgst veganesti.

Völundur Snær sneri aftur heim til Íslands vorið 1999 og tók til starfa sem næstæðsti matreiðslumaður (Sous Chef) við Hótel Holt í Reykjavík (eina “Relais & Chateaux” staðinn á Íslandi) og vann þá með matreiðslumeistaranum Hákoni Má Örvarssyni (Matreiðslumeistara Íslands árið 1997 og fulltrúa Íslands í Bocuse D’ Or í janúar 2001, þar sem hann náði þriðja sæti).

Ferry House veitingastaðurinn, sem Völundur Snær rekur nú um stundir á Grand Bahama býður upp á besta mat sem unnt er að fá á eyjunni og er skráður hjá hinni heimþekktu Chaine du Rotisseurs. Í vinnu sinni leggur Völundur Snær höfuðáherslu á yfirburða gæði og ekki síður hugmyndaauðgi í því úrvali gómsætra rétta, sem boðið er á matseðlinum. Sífelld sókn Völundar Snæs eftir því besta, sem unnt er að ná, hefur skipað Ferry House veitingastaðnum í röð þeirra veitingastaða sem hvað hæst ber á.

Heimasíða Völla: www.volundur.com

Myndir tók góður vinur Freistingar hann Hreinn Hreinsson.

 

 

[email protected]

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Í dag starfar Smári hjá Tónaflóði heimasíðugerð. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Auglýsingapláss
Click to comment

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið