Vertu memm

Keppni

Kanada vinna Scothot 2007

Birting:

þann

Logo Klúbbur Matreiðslumeistara KMNiðurstöður úr keppninni Scothot 2007 eru komin, þar sem Ungkokkar Íslands hafa verið að keppa síðustu daga, n.t. 26. – 28. febrúar og árangurinn glæsilegur hjá ungviðunum.

Keppnin var í tveimur hlutum og keppt var tvo daga, en fyrri hlutinn var í heitum mat og var matseðillinn hinn glæsilegasti hjá Ung kokkum Íslands, sem samanstóð af fjórum réttum, en þeir voru:

Dip
Andar carpaccio með Foie gras

Forréttur
Salfisk og humar terrine með saltfisk brandade, humargljáa og humarmedalíu

Aðalréttur
Lambafille með möndluhjúp, skanka rillet, fontant kartafla, lamba djús og kálböggul með rótargrænmeti

Eftirréttur
Rabbara souffle með skyr ís, hvítsúkkulaði mouse með rabbabara froðu

Í seinni hluta keppninnar var svokölluð sýnikennsla sem var í þremur hlutum, en fyrst átti að úrbeina önd og útbúa forrétti fyrir tvo, því næst var löguð súpa eða seyði úr öndinni. Eins átti að laga aðalrétt fyrir tvo úr öndinni og síðast en ekki síðst eftirétturinn sem innihélt jógúrt, döðlu, ananas og hunang.

Ung kokkar Íslands samanstendur af:

  • Ari Valdimarsson, Thorvaldsen Bar
  • Berglins Ósk Loftsdóttir, Hótel Geysir
  • Rúnar Þór Larsen, Radisson SAS Hótel Saga
  • Sigurður Rúnar Ragnarsson, Nordica
  • Vigdís Ylfa Hreinsdóttir,  Argentína steikhús

Fyrirliði:
Hrefna Rósa Jóhannsdóttir Sætran, Sjávarkjallarinn

Framkvæmdastjóri liðsins:
Sverrir Halldórsson

Til að byrja með voru það Kanada sem fengu gullverðlaun fyrir bæði heita matinn og sýnikennsluna og urðu þar af leiðandi sigurvegarar.

Liðið frá Englandi gekk vel og fengu þau silfur í heita matnum og brons í sýnikennslunni.

Þýskaland hefur alltaf státað sig af að vera framananlega í keppnum, en fengu ekki nema silfur í heita matnum og einnig í sýnikennslunni.

Írland fékk silfur í heita matnum og brons í sýnikennslunni.

Ung kokkar Íslands gerður sér lítið fyrir og náðu gull í heita matnum og silfur í sýnikennsluni

Malta liðið fékk silfur í því heita og brons fyrir sýnikennsluna

Liðið frá Skotlandi fengu gull í heita matnum og silfur í sýnikennslunni

Bandaríska liðið varð efst í stigum í sýnikennslunni og fengu gull í heita matnum.

Wales fengu síðan brons í heita matnum og eins í sýnikennslunni.

Þannig að úrslit urðu að Kanada náði sigri í keppninni.

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Í dag starfar Smári hjá Tónaflóði heimasíðugerð. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið