Vertu memm

Frétt

Kaffi Rauðka í vetrardvala – Lestu 15 ára gamalt viðtal við Ágúst hér

Birting:

þann

Kaffi Rauðka

Þríeykið sem sá um rekstur Kaffi Rauðku í sumar, f.v. Stefanía Thors, Helgi Svavars og Ágúst Fannar.

Veitingastaðurinn Kaffi Rauðka á Siglufirði er kominn í vetrardvala og opnar á ný sumarið 2021.  Staðurinn naut mikilla vinsælda í sumar þar sem bakarinn Ágúst Fannar Einþórsson bauð upp á eldbakaðar pizzur úr lífrænu hveiti.

Hannes Boy sem staðsettur er við hlið Kaffi Rauðku lokaði aðeins fyrr:

Hannes Boy lokar eftir sumaropnunina

Ágúst lærði fræðin sín hjá Fellabakaríi á Egilsstöðum og á meðan hann var í Hótel-, og matvælaskólanum í Kópavogi lærði hann hjá Café Konditori á Suðurlandsbraut.

Eftir námið skellti hann sér í kontidor nám í Danmörku og var á samning hjá Ruths Hotel í Gl. Skagen og útskrifaðist þaðan árið 2007.

Eins og margir vita þá opnaði Ágúst lífræna súrdeigsbakaríið Brauð & co á Frakkastíg árið 2016 og seldi síðan sinn hlut nokkrum árum seinna.

15 ára gamalt viðtal

Til gamans þá látum við 15 ára gamalt viðtal við Ágúst fylgja með, sem birt var hér á veitingageirinn.is, en þá var hann að læra Konditor í Danmörku:

Ágúst Fannar Einþórsson er að læra kontidor í Danmörku

Mynd: facebook / Kaffi Rauðka

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið